Kallað á dómara úr stúkunni 1. júlí 2013 10:50 Örvar með spjaldið á lofti.
Það kom upp erfið staða í leik Fylkis og KR í Lautinni í gær þegar Valgeir Valgeirsson dómari meiddist hálftíma fyrir leikslok. Enginn varadómari var á leiknum og því góð ráð dýr. Það vildi þó svo heppilega til að í stúkunni var annar úrvalsdeildardómari, Örvar Sær Gíslason, að njóta leiksins og varð hann að bjarga félaga sínum úr klípunni. "Ég var bara að horfa á leikinn. Ég vildi ekki vera í Laugardalnum og sitja í skugga. Ég vildi fá sól. Tan og fótbolti, er það ekki fínt," sagði Örvar Sær léttur við Vísi. "Þegar Valgeir meiddist beið ég eftir kallinu. Ég hitti þá í hálfleik og þeir vissu því af mér. Svo var kallað á mig í hátalarakerfinu og ég rauk af stað." Örvar Sær var hvorki með búning né skó en það bjargaðist. "Ég var bara með Ray Ban- sólgleraugu. Við Valgeir notum sömu stærð þannig að ég fór bara í skóna og búninginn hans. Ég skipti um föt bak við skýlið. Valgeir fékk svo úlpu til þess að hylja sig á leið inn í klefa. Það var ekki hægt að senda hann inn á nærbuxunum þó svo hann sé flottur." Örvar segir að það hafi verið mjög erfitt að koma inn í leikinn en segist þó hafa verið sáttur við sína frammistöðu. "Ég hef aldrei lent í þessu áður og þetta var mjög skrítið. Um leið og Valgeir lagðist niður hugsaði ég: "Andskotinn, ég hefði átt að fá mér bara einn hamborgara í kvöldmat." Þetta slapp samt allt." Örvar segir samt að þetta sýni að það verði að hafa aukadómara á öllum leikjum í úrvalsdeildinni. Annað sé ekki hægt.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Mickelson sýndi eiginkonu keppinautar nektarmynd af sér Golf Biður bosnísku þjóðina afsökunar: „Get ekki bent á landið á korti“ Fótbolti Svona líta 32-liða úrslitin á HM út Fótbolti Breiðablik - Víkingur 3-0 | Blikar í bikarúrslit Íslenski boltinn Mikið fjör en engin mörk hjá Kólumbíu og Portúgal og Kongó skaust áfram Fótbolti Forseti Suður-Kóreu húðskammar „vanhæfan“ landsliðsþjálfara Fótbolti Varamaðurinn kramdi hjörtu Írana og Messi skoraði sjötta markið sitt á HM Fótbolti Argentína datt í lukkupottinn: Greið leið í undanúrslitin Fótbolti Frá Sauðárkróki til Sarajevo: „Ótrúlega skemmtileg umbreyting og hentar mér vel“ Fótbolti Jason Daði kominn í KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Harka, hugrekki og massífir“ Þór Ak. - Valur | Tvö lið undir mikilli pressu Keflavík - KR | Níu stig í toppinn og KR þarf sigur Stjarnan - KA | Tvö lið sem þrá sigur FH - ÍBV | Í fallbaráttu og mæta einu heitasta liði deildarinnar Breiðablik - Víkingur 3-0 | Blikar í bikarúrslit Jason Daði kominn í KR KR skoraði sex og fór á toppinn Sextán ára bjargaði Gróttu á Húsavík Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Guðmundur Andri í FH eins og faðir hans forðum Víkingur nælir í Eið Orra sem kemur eftir tímabilið Sumarmótin: Norðurálsmótið 2026 Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Oliver til FH Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Birna með þrennu þegar Stjarnan lagði Fram í Garðabæ Blikar aftur á toppinn eftir öruggan sigur í Eyjum Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús Sjá meira