Getur verið að þú sért með mataróþol? Marín Manda skrifar 8. desember 2013 12:15 Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti „
Sumir hafa reynt um árabil að losa sig við aukakílóin með hreyfingu og réttu mataræði en grennast samt sem áður ekki um gramm. Ástæðan getur verið fæðuóþol,“ segir Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti, sem er þessa dagana að vinna með fæðuóþolsprófið, Food Detective. Inga segir að fæðuóþol geti einnig valdið ýmsum líkamlegum kvillum eins og magaónotum, ristilbólgum, liðverkjum, höfuðverkjum, asma, kláða í húð og fleiri óþægindum. Hún segir að fæðuofnæmi hefi lengi verið þekkt, en fæðuóþol sé aftur á móti lúmskt fyrirbæri og oft mjög erfitt að átta sig á hver óþolsvaldurinn er. Til að mynda getur mjólk eða brauð sem neytt er í dag leitt til liðverkja þremur dögum síðar. Sum fæðutengd einkenni geta líka stafað af skorti á ensímum eða næmni fyrir kemískum efnum en önnur orsakast af ónæmiskerfinu og viðbrögðum þess við áreiti. „Ég hef oft orðið vör við það í minni vinnu að fólk sé orðið langþreytt á ástandinu og heilsuleysinu sem ekki virðist eiga neina skýringu því ekkert komi fram með hefðbundnum rannsóknaraðferðum,“ segir Inga.Hvað er fæðuóþol? „Það er ekki vitað með vissu hvað orsakar fæðuóþol en talið er að ófullnægjandi melting, bakteríuójafnvægi, sveppasýkingar, sníkjudýr, sýkingar í þörmum eða áhrif lyfja geti haft áhrif. Nýlegar rannsóknir Atkinsons og samstarfsmanna hans hafa leitt í ljós að ákveðin fæðumótefni og einkenni fæðuóþols eru nátengd. Framleiðsla mótefnis er ein af leiðum ónæmiskerfisins til að bregðast við efnum sem hafa neikvæð áhrif á líkamann. Við eðlilegar aðstæður blandast þessi mótefni prótíni í fæðunni og mynda efnasambönd sem ónæmiskerfið eyðir. Ef ónæmiskerfið er undir miklu álagi geta efnasamböndin safnast upp á stöðum eins og liðamótum eða í meltingarvegi og kallað fram einkenni fæðuóþols.“Hvað er hægt að gera til að mæla fæðuóþol? „Hingað til hefur ekki verið í boði að fá fæðuóþol mælt með blóðprufu, en nú er orðin breyting þar á. Food Detective er nýtt byltingarkennt fæðuóþolspróf sem mælir óþolsviðbragð (IgG) við yfir 50 fæðutegundum með litlu blóðprófi sem framkvæmt er heima eða hjá fagaðilum.“ Inga segir prófið vera mjög einfalt í notkun og sýni niðurstöður innan 40 mínútna. „Það er mikilvægt að fólk taki ábyrgð á eigin heilsu og leiti eftir hjálpinni þar sem hana er að fá. Food Detective-óþolsprófið er sannarlega góður vegvísir að mögulegu vandamáli og getur flýtt fyrir að fólk komist á rétta braut í mataræðinu. Þetta er öflugt hjálpartæki sem getur sparað tíma og fjármuni,“ segir Inga. Food Detective-fæðuóþolsprófið er hægt að kaupa á heilsanheim.is, Lyfju, Heilsuhúsinu og í Lifandi markaði.
Mest lesið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Fleiri fréttir Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Sjá meira