Formennirnir ræða mikið um skatta- og skuldamál Hrund Þórsdóttir skrifar 11. maí 2013 11:53 Stund á milli stríða. Formennirnir niðri á Alþingi.
Stjórnarmyndunarviðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks halda áfram í dag og á morgun. Aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, segir mikið rætt um skatta- og skuldamál og að formennirnir muni gefa sér þann tíma sem þeir þurfi. Formenn flokkanna, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson ætla að hittast á höfuðborgarsvæðinu núna um hádegisbilið en halda svo hugsanlega út fyrir bæjarmörkin og halda áfram viðræðum þar. „Viðræður halda áfram bara eins og þær hafa gert. Í gær ræddu þeir mikið um efnahagsmál, skattamál og skuldamálin, og þeir halda áfram þeirri vinnu sem hefur verið í gangi. Þeir munu gera það bæði í dag og á morgun og eins lengi og þurfa þykir þar til niðurstaða næst,“ segir Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Spurð um hvort fleiri en formennirnir muni koma að viðræðunum á næstunni segir hún að þeir muni meta það sjálfir og kalla til fólk þegar það verði tímabært. „Það er búið að vera mjög góður gangur í þessu. Það er fín framvinda á viðræðunum og eins og þeir sögðu í viðtölum í gær þá ná þeir vel saman og það er ekki mikið sem steytir á. Það eru bara ákveðnar tæknilegar útfærslur sem þarf að fara vel yfir og vinna vel,“ segir Svanhildur. Umræður um ráðherraskipan eru ekki hafnar og Svanhildur segir óljóst hvenær búast megi við lendingu í viðræðunum. „Þeir ætla að gefa sér þann tíma sem þeir þurfa til að vinna þetta eins og best verður á kosið þannig að í næstu viku,“ segir hún að lokum.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira