Hafna úrskurði um farþega í slöngubáti Garðar Örn Úlfarsson skrifar 28. maí 2013 07:00 Hvalaskoðunarbátur Gentle Giants tekur 24 farþega, segir framkvæmdastjórinn, en farþegarnir mega aðeins vera tólf samkvæmt reglum Siglingastofnunar. Mynd/Gentle Giants „
Við munum að sjálfsögðu kanna dómstólaleiðina,“ segir Stefán Guðmundsson, framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Gentle Giants sem fær ekki að fjölga farþegum á slöngubát sínum úr tólf í sextán. Stefán segir Gentle Giants hafa notað RIB-bátinn Ömmu Siggu í tvö ár við hvalaskoðun á Húsavík. Viðlíka bátar eru í notkun í Vestmannaeyjum, Stykkishólmi og Ísafirði. Gentle Giants kærði ákvörðun Siglingastofnunar um að heimila ekki sextán farþega um borð í stað tólf og að mæla fyrir um að farþegar væru í einangrandi flotbúningum þegar sjór væri kaldastur, það er utan sumartímabilsins 1. júní til 30. september. Gentle Giants vildi að miðað yrði við tímabilið 15. apríl til og með 31. október í staðinn. Siglingastofnun sagði það ekki geta talist vera „yfirdrifin krafa“ að farþegarnir klæddust einangrandi flotbúningum utan fyrrnefnds tímabils. „Líkt og fram kemur í ákvörðun Siglingastofnunar er ástæðan fyrir þessari kröfu meðal annars sú að umræddir RIB-bátar nái miklum hraða og því sé mikil vindkæling, farþegar sitji í opnu rými undir berum himni, fríborð sé mjög lágt og meiri hætta á að farþegar geti fallið fyrir borð,“ segir í úrskurði innanríkisráðuneytisins. „Við teljum að við höfum unnið sigur í þessu máli vegna þess að með bréfi frá ráðuneytinu til Siglingastofnunar eru skýr fyrirmæli um að stofnunin endurskoði sínar vinnureglur varðandi þessa báta,“ segir Stefán Guðmundsson. „Það er eins og ráðuneytið hafi viljað leyfa stofnuninni að halda andlitinu í kærumálinu sjálfu en sé að segja um leið að reglurnar virki ekki og fyrirskipi að endurskoða þær án tafar.“ Að sögn Stefáns er um úrslitaatriði að ræða fyrir þá sem reka RIB-bátana að fá umbeðnar tilslakanir. „Það er sjálfhætt fyrir okkur ef þetta verður endanleg niðurstaða,“ segir hann um áhrif takmarkananna sem settar voru á í byrjun mars. Notkun einangrandi flotbúninga sé gríðarleg kvöð vegna umstangs sem þeim fylgi. „Það má líkja þessu við að farþegar í flugvélum þyrftu að spenna á sig fallhlíf um leið og þeir kæmu í vélina og prófa hana einu sinni í ferðinni og svo þyrfti flugfélagið að sjá um að henni væri pakkað saman og hún gerð klár í næstu ferð,“ segir Stefán, sem kveður framhald málsins algjörlega fara eftir viðbrögðum Siglingastofnunar á næstu dögum.
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira