Íslendingurinn í Noregi verður ekki yfirheyrður fyrr en í næstu viku Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. maí 2013 13:33 Maðurinn verður yfirheyrður í næstu viku. Mynd/ Getty.
Íslenski karlmaðurinn, sem grunaður er um morð í Noregi, verður líklegast ekki yfirheyrður fyrr en í næstu viku. Þetta segir Svein Kjetil Stallemo, verjandi hans, í samtali við Vísi. „Við höfum ekki fengið neinar upplýsingar að ráði frá lögreglunni. Lögreglan vill taka formlega skýrslu af honum áður en þeir gefa upplýsingar um það hvað vitni og aðrir hafa sagt,“ segir Stallemo í samtali við Vísi. Þegar maðurinn var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í gær var það gert fyrir luktum dyrum. Stallemo segir að slíkt sé ekki venjan í Noregi. Saksóknari hafi aftur á móti farið fram á það í gær vegna þess að fjöldi vitna ætti eftir að gefa skýrslu og ekki væri kominn mynd á atburðarrásina. Hann hafi sjálfur samþykkt þá kröfu. Maðurinn lést í samkvæmistjaldi, þar sem nokkrir voru saman komnir að skemmta sér. Íslendingurinn sem sakaður er um morðið mun hafa verið undir áhrifum áfengis eins og margir aðrir sem þar voru. Stallemo segir að ekkert liggi fyrir um það hvernig atburðarrásin var þegar maðurinn lést af sárum sínum. Hann segir skjólstæðing sinn muna hvernig seinni hluti dagsins og fyrri hluti kvöldsins var en man ekki aðdragandann að því að maðurinn lést. Stallemo segir að lögreglan hafi talað við skjólstæðing sinn í klukkutíma morguninn sem hann var handtekinn. „Hann talaði þá við þá í klukkutíma,“ segir Stallemo. Hann segir að skjólstæðingur sinn vilji sýna lögreglunni samstarfsvilja. „Það er mikilvægt að hann að geta sagt lögreglunni sína hlið málsins en ég er ekki viss um að það geti gerst fyrr en í næstu viku,“ segir hann.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira