Forsætisráðherra, forseti, biskup og borgarstjóri öll úr sömu sveitinni Kristján Hjálmarsson skrifar 28. maí 2013 16:06 Ættir fjórmenninganna hafa verið raktar á vef Reykhólahrepps.
Mörg af helstu fyrirmennum landsins; forseti Íslands, forsætisráðherra, borgarstjóri og biskup, eru öll ættuð úr sömu sveitinni, Reykhólahreppi í Austur-Barðarstrandarsýslu. "Ég er sjálf aðflutt og hef þetta ekki í æðunum en eftir að hafa búið hér í að verða þrjú ár sé ég hversu rosalega sterkt og duglegt fólkið er sem kemur héðan. Því er í blóð borið að bjarga sér og komast áfram," segir Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri í Reykhólasveit, aðspurð um hvað valdi því að fólk úr sveitinni sé jafn áberandi og raun ber vitni. "Ég held að fólkið hér hafi verið svolítið einangrað og hafi þurft að leggja mikið á sig til að komast af - það hafi verið rosalega duglegt og kallaði ekki allt ömmu sína. Það er einhver andi sem berst síðan áfram," segir sveitarstjórinn. Á vef Reykhólahrepps eru ættir fyrirmennanna raktar. Þar kemur meðal annars fram að afi Ólafs Ragnars Grímssonar forseta hét Ólafur Ragnar Hjartarson og fæddist á Kambi í Reykhólasveit en langafi forsetans, Hjörtur Bjarnason, var frá Hamarlandi í sömu sveit. Afi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, Sigmundur Jónsson, fæddist líka og ólst upp á Kambi eins og afi Ólafs Ragnars. Amma og afi Jóns Gnarr borgarstjóra voru hjónin Guðrún Guðmundsdóttir og Óskar Arinbjörnsson á Eyri í Kollafirði í Gufudalssveit. Faðir Agnesar M. Sigurðardóttur biskups var Sigurður Kristjánsson frá Skerðingsstöðum í Reykhólasveit, sem lengi var prestur á Ísafirði. Fjörugar umræður hafa skapast á vef Reykhólahrepps og þar kemur meðal annars fram að langalangaafi Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna, Guðmundur Einarsson sé einnig úr sveitinni.
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Fleiri fréttir Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Sjá meira