Von á meiri flóðum Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 15. september 2013 18:16
Allavega fimm manns eru látnir og um fimm hundruð er saknað vegna flóða sem gengið hafa yfir Colorado undanfarna daga. Íslenskur nemi í fylkinu segir von á meiri flóðum. Mikið hefur rignt yfir íbúa Colorado undanfarna daga en miðvikudagur og fimmtudagur í síðustu viku eru tveir mestu rigningadagar frá því mælingar hófust í fylkinu. Yfir þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóða sem myndast hafa eftir úrhellið, sex eru taldir af og tæplega fimm hundruð manns er saknað. Hákon Skjenstad, sem býr í Boulder þar sem miklar skemmdir hafa orðið, segir að mörg hús uppi við fjöllin hafi hreinlega hrunið til grunna og að mikil leit standi þar yfir af fólki sem bjó í þeim húsum. Hann segir að ennþá sé svakaleg rigning og að von sé á meiri flóðum. Hákon segir að allir hans vinir séu öruggir. „Ég hef tékkað á öllum sem að ég þekki. Það hefur flætt inn hjá mjög mörgum, í kjöllurum og einnig á jarðhæðum ef að fólk býr þar sem árnar eru og húsin liggja lágt. Ég þekki samt engan persónulega sem hefur lent í mjög slæmum aðstæðum,“ segir hann. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur lýst yfir neyðarástandi í fylkinu og lofað fjármagni til aðstoðar íbúum þess. Hákon segir segir að merki um það hversu mikil flóðin sé til dæmis að háskólasvæði Colorado háskólans er búið að vera lokað síðan á fimmtudag. „Það er aldrei öllu lokað og fólki sagt að halda sig heima,“ segir hann.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira