Persónuvernd efast um tilgang söfnunar persónuupplýsinga um lánamál Heimir Már Pétursson skrifar 15. september 2013 17:55
Persónuvernd telur að færa verði mjög sterk rök fyrir eins miklu inngripi í persónuupplýsingar fólks og gert sé í frumvarpi um Hagstofu Íslands þar sem öllum lánaupplýsingum fólks verður safnað saman. Stjórnarþingmaður segir almannahagsmuni ráði því að safna verði upplýsingunum saman. Samkvæmt frumvarpi forsætisráðherra um Hagstofu Íslands á að safna gífurlega miklum upplýsingum um öll lán einstaklinganna í landinu og ekki bara hvers konar lán þeir eru með, heldur hvers vegna þeir tóku lánin. Það verður því fátt eftir sem „stóri bróðir“ safnar ekki upplýsingum um, um einstaklingana í landinu. Frumvarpið er mjög umdeilt og leggst stjórnarandstaðan gegn því og telur allt of langt gengið. Í dag hefur Hagstofan upplýsingar um lánamál einstaklinga og fyrirtækja úr skattframtölum en í frumvarpinu er gengið mun lengra. Forstjóri Persónuverndar segir ekki færð nægjanleg rök fyrir því að fara í svo viðamikla gagnasöfnun, sem reyndar á aðeins að gilda í fimm ár og upplýsingarnar verða dulkóðaðar. Hörður Helgi Helgason forstjóri Persónuverndar segir að farið sé ansi nærri einstaklingum með þessari upplýsingasöfnun. „Það er ljóst að það er verið að gera það. Það er í sjálfu sér ekki neinn ágreiningur með það. Þetta er gífurlega nákvæm kortlagning á öllum lánum sem allir taka í þjóðfélaginu. Það er í sjálfu sér ekki deilt um það að hún er afar viðamikil,“ segir Hörður Helgi. Persónuvernd og friðhelgi einkalífsins snúist um þær hættur sem gagnaöflun sem þessi skapi, upplýsingar sem eigi að fara leynt geti afhjúpast og upplýsingar geti líka verið rangar. „En persónuverndin snýst um meira. Hún snýst líka um það að við eigum að njóta friðhelgi einkalífs og ef við ætlum að skerða hana verðum við að hafa góð rök fyrir því. Við höfum talið að það skorti örlítið upp á það að útskýra af hverju það þurfi að leggjast í þessa vinnslu til að ná einhverjum markmiðum sem við teljum að sé ekki alveg búið að útskýra,“ segir hann. Hörður segir að á vissan hátt hafi verið komið til móts við öryggisþáttinn varðandi upplýsingarnar. „En eftir stendur stóra spurningin og hún er kannski að einhverju leyti pólitísk og þess vegna er eðlilegt að löggjafinn taki þessa ákvörðun og hún er sú hvort við viljum sem þjóðfélag leggja í svona viðamikla vinnslu persónuupplýsinga um hvert og eitt okkar. Hvort að við teljum að hagsmunirnir sem eru í húfi séu ríkari en friðhelgi einkalífsins í þessu tilliti,“ segir Hörður Helgi.Líneik Anna SævarsdóttirEn hvers vegna telja stjórnvöld svona mikla gagnaöflun nauðsynlega? Líneik Anna Sævarsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins og fulltrúi í allsherjar- og menntanefnd segir að þótt mikið sé til af gögnum frá skattstjóra komi ekki fram þar hver heildarskuldastaða heimilanna og greiðslustaða þeirra sé. „Það verður ekki metið af þeim gögnum sem þar eru. Þannig að það sem nú bætist við gerir mögulegt að vinna tölfræði sem sýnir þessa stöðu," segir Líneik Anna. Vissulega sé farið ansi nálægt einkamálum fólks. "Þess vegna eru ýmis álitaefni sem varða frumvarpið. Og þess vegna er ekki farið í svona gagnasöfnun nema brýna nauðsyn beri til. Alamannahagsmunir koma þar sterkir inn," segir Anna Líneik.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira