"Ef ég geri ein mistök þá getur atvinnuferillinn endað strax" Ellý Ármanns skrifar 23. október 2013 11:30
Ívar Guðmundsson og Arnar Grant sem framleiða Hámark drykkinn gerðu á dögunum styrktarsamning við Margréti Gnarr afrekskonu með meiru. Við spurðum bæði Margréti og Ívar um samninginn og svo forvitnuðumust við líka um framtíð heimsmeistarans.Margir vilja styðja við bakið á Margréti „Við erum að styðja við tugi íþróttamanna með Hámark drykknum. Þetta er svona aðeins viðameiri samningur sem auðveldar Möggu að ferðast á þau mót sem eru framundan hjá henni. Þetta er styrktarsamningur en það er mjög dýrt að ferðast og taka þátt í stórum mótum eins og stendur til hjá henni á næsta ári. Við teljum það mikilvægt að hafa íslenskt vörumerki sem styrktaraðila hjá henni en fjölmargir erlendir aðilar hafa áhuga á að styðja við bakið á henni," segir Ívar.Ívar og Arnar höfðu samband „Eftir að ég vann Heimsmeistaramótið höfðu Ívar og Arnar samband við mig og sögðu mér að Hámark vildi endilega styrkja mig," segir Margrét Edda Gnarr sem stóð uppi sem sigurvegari í sínum hæðarflokki á heimsmeistaramóti IFBB í Bikini Fitness í september síðastliðnum. „Þessi samningur gildir í eitt ár og Hámark mun styrkja mig á þau mót sem ég keppi á á næsta ári en á næsta ári fer ég að keppa á atvinnumannamótum. Þetta er rosalega góður samningur og ég gæti ekki verið ánægðari," segir hún.Ætlar að fara varlegaHvað er framundan hjá þér? „Framundan er mikil vinna að plana árið 2014 en ég vil fara varlega í allt því ef ég geri ein mistök þá getur atvinnuferillinn endað strax," svarar Margrét.Stefnir á Arnold Classic í Ohio „Ég er að hugsa mikið um eitt mót sem er haldið í lok febrúar á næsta ári en það er eina mótið á árinu sem ég þarf að fá svokallað boð á. Ég er að vinna í því að fá boð á þetta mót og það eru alveg góðar líkur á því að ég fái það þar sem ég er fyrsti atvinnumaður Íslendinga. Þetta mót heitir Arnold Classic og er haldið í Columbus Ohio. Mótið er bæði fyrir áhugamenn og sem áhugamaður þarf ég ekki sérstakt boð en sem atvinnumaður þarf ég það en allir sterkustu atvinnumenn heims keppa á þessu móti," útskýrir Margrét. Afrekskonan Margrét.Arnar Grant, Margrét Gnarr og Ívar Guðmundsson skrifuðu undir styrktarsamning til eins árs.
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Fleiri fréttir Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Sjá meira