Séra Þorgrímur gekk á 30 tinda í sumar 2. september 2013 08:00 Presturinn segir að þessi þrjátíu tinda þraut hafi verið tekin meira með skynseminni en kröftunum.
Þorgrímur Daníelsson, sóknarprestur á Grenjaðarstað, hefur lokið göngu sinni á þrjátíu tinda og stóðst þar með þá áskorun að ljúka því verki áður en ágústmánuður væri liðinn. Þetta gerði hann til að vekja athygli á Landspítalasöfnun þjóðkirkjunnar. Lokatindurinn var Bolafjall við Bolungarvík og segir Þorgrímur að það hafi verið táknrænt því Agnes Sigurðardóttir hafi einmitt verið sóknarprestur í Bolungarvík áður en hún var vígð til biskups. „Ég naut góðs félagsskapar á öllum ferðum nema í sjö skipti sem ég fór einn,“ segir Þorgrímur. „Förunautar mínir á Kambsmýrarhnjúk voru hinir harðsnúnu félagsmenn úr göngufélaginu 24 sinnum 24. Sem dæmi um harðfylgi þeirra má geta þess að nafnið er tilkomið af göngu þeirra á 24 tinda á sólarhring.“ Hann segist vera afar þakklátur með þann stuðning sem hann hefur fengið á leiðinni. „Ég segi bara eins og Stefán frá Hvítadal:Ég á öllum gott að gjalda,gleði mín er djúp og rík.“ Þegar blaðamaður spyr hvernig söfnunin gangi kemur Þorgrímur af fjöllum, enda Mammon ekki hans drottinn.
Mest lesið Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Erlent Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Erlent Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Erlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Sjá meira