Stafróf af dýrum Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 16. nóvember 2013 09:00 Þetta fólk er tengt fjölskylduböndum og eru aðstandendur leiksins. Frá vinstri: Bergrún Íris Sævarsdóttir, myndlistar- og blaðakona, Andri Ómarsson tómstundafræðingur, Arnþór Snær Sævarsson tölvunarfræðingur og Elísabet Ólafsdóttir, bókmenntafræðingur og vefstýra. mynd/úr einkasafni
Í dag er kynnt ókeypis viðbót við leikinn Stafina okkar sem kom út í sumar. Bæst hefur við myndasafn sem sýnir dýr af öllum stærðum og gerðum en erfitt reyndist að finna dýr fyrir alla stafina.„Þetta var virkilega skemmtileg áskorun og við erum ánægð með útkomuna,“ segir Elísabet Ólafsdóttir, bókmenntafræðingur og vefstýra, sem skapaði hinn bráðskemmtilega og lærdómsríka leik Stafina okkar ásamt fjölskyldu sinni og ljær honum meðal annars rödd sína. Leikurinn er fyrir spjaldtölvur og snjallsíma og hefur slegið í gegn hjá íslensku smáfólki á síðustu mánuðum. Því vilja aðstandendur hans sýna þakklæti sitt í verki með gefins uppfærslu á leiknum í dag, á degi íslenskrar tungu. „Fyrsta myndasafnið sýndi börnum ýmiss konar orð en nú hefur bæst við stórt myndasafn með alls konar dýrum. Erfiðast var að finna dýr sem byrjar á stafnum „i“ en Vísindavefurinn kom til bjargar með dýrin iglur, iktur og ildýr. Ildýrin urðu fyrir valinu enda skemmtilega myndræn bifdýr alsett litlum hárum,“ útskýrir Elísabet. Stafurinn „x“ olli einnig smávegis höfuðverk en niðurstaðan var að nota orðið uxi. „Þá ekki eins og í útihátíðinni Uxa, heldur sem annað orð yfir tudda eða tarf,“ segir Elísabet og hlær. „Íslenskan er rík af fallegum og fróðlegum orðum og óþarfi að börnin okkar hafi bara úr erlendum spjaldtölvuleikjum að velja. Leikurinn Stafirnir okkar er nú orðinn tvöfalt skemmtilegri og okkur fannst kjörið að kynna þessa skemmtilegu og ókeypis viðbót við leikinn á degi íslenskrar tungu,“ segir Elísabet og tekur fram að leikurinn sé þegar kominn út fyrir Android en þegar þetta er skrifað er Apple að leggja lokahönd á rýnina. „Við krossum bara putta og vonum að Apple haldi sig við settan dag. Það er ekkert smá spennandi!“ Fyrir jólin er væntanlegur nýr leikur frá hópnum sem ber nafnið Tölurnar okkar. „Í honum tökumst við á við tölustafina með skemmtilegum myndskreytingum,“ segir Elísabet um fróðlegan leik sinn og skemmtilega barnaskemmtun. Stafirnir okkar fást í Appstore og á Google Play. Þeir sem eiga leikinn nú þegar fá í dag dýrapakkann gefins og þeir sem kaupa leikinn eftir uppfærslu fá tvo stafapakka í stað eins.
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira