"Það voru fleiri lögreglumenn en mótmælendur“ Boði Logason skrifar 19. september 2013 13:37 „
Það voru fleiri lögreglumenn en mótmælendur,“ segir Gísli Garðarsson, talsmaður Ungra Vinstri Grænna í utanríkismálum, sem stóð fyrir mótmælum fyrir utan Norræna húsið í morgun vegna fyrirlesturs formanns hermálanefndar NATÓ. Knud Bartels, hershöfðingi og formaður hermálanefndar NATÓ, hélt fyrirlestur í Norræna húsinu í morgun til að ræða stöðu bandalagsins eftir Kalda stríðið. Ung Vinstri Græn efndu til mótmæla af þessu tilefni. Gísli segir að um tuttugu manns hafi mætt á svæðið til að mótmæla. „Við vorum að mótmæla bæði NATÓ og aðild Íslands að bandalaginu, auk þess að NATÓ fengi að nota Norræna húsið til að flytja sinn stríðsáróður. Við vorum með skilti og létum vel í okkur heyra, sérstaklega þegar Knud kom,“ segir hann.Og hvernig brást hann við? „Hann bauð okkur að koma inn og ræða málin, við þáðum ekki það boð enda algjörlega tilgangslaust að ræða við þessa menn.“ Gísli segir að það sé skýlaus krafa samtakanna að Ísland segi sig úr Nató. „Við teljum að NATÓ sé herskátt árásarbandalag, sem fer inn í fjarlæg lönd og sinni þar hernaðarstarfsemi, en ekki varnarstarfsemi eins og yfirskriftin er.“ Hann segir að mótmælin í morgun hafi farið friðsamlega fram. „Viðbúnaður lögreglunnar var töluvert meiri en við bjuggumst við, það voru held ég fleiri lögreglumenn en mótmælendur.“Afhverju heldur þú að það sé? „Ég held að það sé vegna þess að í NATÓ eru margir hræddir litlir karlar,“ segir Gísli að lokum.Nánar verður fjallað um mótmælin í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.
Mest lesið Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Innlent Lögreglan lýsir eftir Hebu Ýr Innlent „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Erlent Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Innlent Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Innlent Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Erlent Fleiri fréttir Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Óskar viðbragða ráðherra við löngum afgreiðslutíma Lögregla lýsir eftir heilabilaðri konu á Akureyri „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Vilja taka fjármálaáætlun til umræðu Einu verslun Þingeyringa lokað Aðsóknarmet slegið í lögreglunám Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Lögreglan lýsir eftir Hebu Ýr Öll tölfræði um málþófið á einum stað: Íslandsmet á næsta sólarhring „Þetta er bara hálfkák og ekkert annað“ Skiltið hluti af stærra vandamáli sem dragi úr lífsgæðum Spyr hvort berja megi blaðamenn í ljósi sýknudómsins Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Fjársvelt geðheilbrigðisúrræði og boltaleikjabann „Kemur ekki til greina að fresta þessu máli“ Fimm grunuð um að ráðast á mann sem kom öðrum til bjargar Þrír milljarðar til viðbótar í viðhald vega Sjö ára dómur fyrir að stinga tvo: Hittu árásarmanninn í fyrsta skipti þessa nýársnótt Vill vindorkuver í Garpsdal og breytir tillögu stjórnar Tugir með magapínu eftir þríþraut við Laugarvatn Sjá meira
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent