Innlent

Féll niður þrjá metra

Slysið varð í Vogum á Vatnsleysuströnd.
Slysið varð í Vogum á Vatnsleysuströnd. Mynd/ GVA.
Vinnuslys varð í fiskvinnslufyrirtækinu Stofnfiski í Vogum, þegar starfsmaður var að skipta um útloftsbarka í um þriggja metra hæð. Maðurinn stóð í stiga sem rann skyndilega undan honum með þeim afleiðingum að hann hafnaði á stálröri.

Lögreglan á Suðurnesjum var kvödd á slysstað. Í ljós kom, þegar maðurinn hafði verið fluttur til aðhlynningar og skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, að hann var með brotin rifbein auk þess sem annað lunga hans hafði lagst saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×