Borgar sig ekki að hreinsa ströndina í Kolgrafarfirði JHH skrifar 16. janúar 2013 19:46 Ströndin í Kolgrafarfirði var þakin síld.
Alls óvíst er hvort það borgi sig að hreinsa sjávarbotninn í Kolgrafarfirði þar sem mikið magn af dauðri síld liggur. Starfsmaður Umhverfisstofnunar skoðaði fjörur Kolgrafarfjarðar síðastliðinn föstudag til að fara yfir stöðuna. Þá voru aðstæður á fjörum kannaðar og var nokkuð mikið magn af dauðri síld/fitu í fjöruborðinu á um það bil 1/3 fjörunnar frá brúnni að vestanverðu og meira eða minna samfellt vel fram hjá bænum Eiði. Á öðrum stöðum í fjörunni var ekki að sjá áberandi magn. Það er mat Umhverfisstofnunar að þar sem fiskur liggur í sandfjöru og ekki er mikið um gróður ætti að vera mögulegt að plægja niður eða grafa skurði og ýta dauðri síld í og moka yfir ef veruleg ólykt verður. Umhverfisstofnun og Náttúrustofa Vesturlands telja að öðru leyti sé best að láta hið náttúrulega niðurbrot ganga sinn gang í fjörunni. Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun segir að þessar tvær stofnanir telji að nauðsynlegt sé að náið verði fylgst með ástandinu og staðan endurmetin ef athuganir benda til að fuglum stafi hætta af grút. Í vatnsfasanum innan brúar var mikið af tægjum og einnig töluverð brák á yfirborðinu og einstaka dauð síld. Þetta bendir til að dauður fiskur á botni fjarðarins sé að leysast upp og blandist í vatnsfasann. Sé það rétt ættu líkur á að það myndist mjög súrefnissnauðar aðstæður við botninn í tengslum við rotnunina að minnka, en kanna þarf hvernig botninn lítur út áður en hægt er að fullyrða nokkuð um það. Rannsóknir á því standa yfir af hálfu Hafrannsóknarstofnunar. Hvað varðar ástand sjávarins og botnsins er beðið eftir gögnum frá Hafrannsóknastofnun til að meta það. Meta þarf hvort lífríki stafi hætta af niðurbroti fisksins og hver áhrif yrðu af hreinsun. Stundum er það svo að áhrif af hreinsun eru verri fyrir lífríki en áhrif t.d. mengunar eða niðurbrots lífvera. Dauði og niðurbrot lífvera í sínu náttúrulega umhverfi, s.s. eins og hvalreki eða hræ af hreindýrum á heiði, fellur ekki undir bráðamengun. Bráðamengun snýr að inngripi mannsins í umhverfið sem getur valdið skaða eða hættu fyrir umhverfið. Talsverður munur er t.d. á því hvort fiskur deyr og safnast upp í firði sem hann synti inn í sjálfur eða hvort honum sé t.d. varpað kerfisbundið úr verksmiðju þangað sem hann var fluttur.
Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Sjá meira