Padma Lakshmi þjáðist í mörg ár 3. mars 2013 14:30 Padma Lakshmi í góðra vina hópi.
Hvað eiga leikkonurnar Susan Sarandon, Whoopi Goldberg og fyrirsætan og sjónvarpskokkurinn úr Top Chef-þáttunum, Padma Lakshmi, sameiginlegt fyrir utan frægðina? Þær hafa allar háð baráttu við hinn falda móðurlífssjúkdóm, endómetríósu eða legslímuflakk. Padma hafði þjáðst af slæmum tíðaverkjum frá því hún var unglingur og ítrekað leitað sér læknisaðstoðar án þess að fá sjúkdómsgreiningu. Það var ekki fyrr en henni var bent á Dr. Seckin, skurðlækni og sérfræðing í endómetríósu, sem hún fékk loks sjúkdómsgreiningu og öðlaðist betra líf, þá 36 ára gömul. Fyrsta aðgerð Pödmu tók fjóra tíma og í framhaldinu þurfti hún að ganga í gegnum þrjár aðgerðir til viðbótar þar sem sjúkdómnum hafði í gegnum öll þessi ár gefist tækifæri til að ágerast og valda meiri skaða en ella hefði orðið. Pödmu var sagt að ólíklegt væri að hún gæti orðið móðir en engu að síður varð hún barnshafandi og eignaðist dóttur sína Krishna, árið 2010, sem hún lítur á sem algjört kraftaverk. Sár yfir löngum greiningartíma Pödmu fannst með ólíkindum að hún skyldi hafa þurft að þjást í öll þessi ár þrátt fyrir að hún hafi leitað sér ítrekað hjálpar. Hún var reið yfir því að hafa ekki fyrr fengið rétta sjúkdómsgreiningu og þá meðferð sem hún þurfti. Hún stofnaði árið 2009, ásamt Dr. Seckin, samtökin The Endometriosis Foundation of America (endofound.org) og hefur í gegnum þau verið dugleg við að vekja athygli á þessum oft erfiða sjúkdómi.Marlyn Monroe ein endókvenna Woopi Goldberg og Susan Sarandon hafa einnig báðar komið fram fyrir hönd samtakanna og tjáð sig um sína reynslu af lífi með endómetríósu. Ýmsar fleiri þjóðþekktar konur hafa lagt málstaðnum lið, eins og fyrirsætan Tyra Banks og sjónvarpsfréttakonan Lizzie O'Leary. Ein þekktasta stjarnan sem vitað er til að hafi haft endómetríósu hlýtur þó að vera Marilyn Monroe sem fór í gegnum ítrekaðar móðurlífsaðgerðir vegna sjúkdómsins, ásamt því að missa fóstur. Vika endómetríósu á Íslandi Dagana 1.-7. mars er Vika endómetríósu á Íslandi. Þann tíma munu fræðsluskilti um endómetríósu standa frammi í Kringlunni og Landspítalinn við Hringbraut verður upplýstur með gulum lit, lit endómetríósu. Þessa vikuna verður einnig aðalfundur Samtaka um endómetríósu, fluttur verður fyrirlestur um verki og verkjameðferð, kaffihúsahittingur og fleira. Á facebook.com/endometriosa og endo.is má finna upplýsingar um sjúkdóminn og starf samtakanna.
Mest lesið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Jólabylgjan komin í loftið Jól Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Sjá meira