Stöðva alla bílaleigubíla í dag 24. maí 2013 06:00 „
Við ætlum að stöðva öll ökutæki sem koma frá flugstöðinni,“ segir Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, um átak í dag þar sem kanna á ástand bílaleigubíla. Kveikjan að átakinu er meðal annars dæmi um að óviðunandi ástand og viðhald á bílaleigubílum hafi valdið slysum á ferðafólki. „Í gögnum lögreglu má sjá slys og óhöpp sem rekja má til lélegs ástands bílaleigubíla og hefur slíkum tilfellum fjölgað á undanförnum árum,“ segir í tilkynningu frá Umferðarstofu. Átakið er samstarfsverkefni lögregluembætta frá Vesturlandi að Hvolsvelli með aðkomu Umferðarstofu, rannsóknarnefndar umferðarslysa, Aðalskoðunar, Frumherja og Vegagerðarinnar, sem annast útgáfu starfsleyfa bílaleiga. Um tugur lögregluþjóna mun eftir hádegi í dag koma sér fyrir við veginn frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar og sitja þar fyrir bílum þeirra sem koma með flugi. „Við ætlum að kanna réttindi og ástand ökumanna. Bílaleigubílar verða skoðaðir sérstaklega með tilliti þess hvort skráning þeirra sé með réttum hætti og hvernig ástand þeirra er,“ segir Skúli sem kveður færanlega skoðunarstöð á staðnum verða notaða ef þörf þykir. Átakið byrjar þó raunar strax fyrir hádegi. Það verður tekið hús á hátt í tuttugu af ríflega þrjátíu bílaleigum á Suðurnesjum. „Það á að kanna starfsleyfi, hvort ökutækin séu skráð á bílaleiguna sem er með starfsleyfið og hvort bílarnir séu skráðir sem slíkir en ekki til almennrar notkunar. Eftir atvikum á að skoða ástand ökutækjanna,“ segir Skúli sem kveður átakinu verða fylgt eftir á Suðurlandi og Vesturlandi í sumar.- gar
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira