Rúmlega 400 konur leituðu til Kvennaathvarfsins 5. mars 2013 09:17 Sigþrúður Guðmundsdóttir er framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.
Á nýliðnu ári dvöldu 200 gestir, konur og börn, í Kvennaathvarfinu í allt frá einum degi upp í í 213 daga, samkvæmt tölum frá Kvennaathvarfinu. Það vakti sérstaka athygli starfsmanna hve mörg börn dvöldu í athvarfinu, en þau voru 87 og dvöldu þar í að meðaltali 24 daga. Íbúafjöldi fór upp í 23 þegar mest lét en að meðaltali dvöldu 6 konur og 6 börn í athvarfinu á degi hverjum. Að auki komu 211 konur í eitt eða fleiri ráðgjafar- og stuðningsviðtöl á árinu og þrír sjálfshjálparhópar voru starfræktir. Sími athvarfsins var opinn allan sólarhringinn sem endranær, segir í tilkynningu frá Kvennaathvarfinu. Konurnar 334 sem komu í athvarfið á árinu voru á aldrinum 15-77 ára en ofbeldismennirnir sem stuðluðu að veru þeirra á aldrinum 15-89 ára. Yngsta barnið var nokkurra vikna gamalt en það elsta 17 ára. Á árinu komst á sú nýbreytni að nú fá börnin í athvarfinu þjónustu sérfræðings á vegum tilraunaverkefnis í samvinnu Barnaverndarstofu, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og barnaverndar sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Það er liður í að bæta þjónustu við börn í athvarfinu og draga úr áhrifum ofbeldisins í lífi þeirra.Meirihluti kvennanna íslenskur að uppruna 66% kvenna sem komu í athvarfið á árinu eru íslenskar að uppruna. Meirihluti dvalarkvenna er þó að erlendum uppruna, eða 56% sem skýrist líklega af því að þær hafa í færri hús að venda heldur en íslensku konurnar þegar þær yfirgefa heimili sín. Reikna má með að sömu ástæður liggi að baki þess að erlendu konurnar dvelja að jafnaði lengur í athvarfinu en íslenskar konur. Meirihluti ofbeldismannanna, eða rúm 80%, eru Íslendingar.Um 40% kvenna fóru í óbreyttar aðstæður Óvenju hátt hlutfall kvenna fór aftur til ofbeldsmannsins en talið er að 40% dvalarkvenna hafi farið heim í óbreyttar aðstæður. Að sama skapi fóru fáar konur, eða 6% dvalarkvenna heim í breyttar aðstæður þar sem ofbeldismaðurinn er fluttur að heiman eða að öðru leyti hægt að reikna með að ástandið á heimilinu hafi batnað.
Mest lesið Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Björguðu veikum söngvara í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Innlent „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Innlent Aftur í skólastjórastólinn Innlent Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Erlent TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Erlent Fleiri fréttir Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum söngvara í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Sjá meira
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent