Vindóttir hestar taldir síður þola áreiti 12. júní 2013 07:00 Viðkvæmni vindóttra hesta er viðfangsefni vísindamanna. Mynd/Gígja Dögg Einarsdóttir
Vindóttir íslenskir hestar virðast viðkvæmari fyrir umhverfisáreiti en aðrir íslenskir hestar. Tengsl vindótta erfðavísisins og augnsjúkdóms kunna að vera skýringin, að því er haft er eftir vísindamanninum Emmu Brunberg á vefnum forskning.no. Þar kemur fram að vísbendingar hafi verið um að erfiðara væri að eiga við vindótta hesta en aðra. Brunberg tók þátt í rannsókn sænskra vísindamanna á 27 íslenskum hestum, þar af níu vindóttum. Hún segir frekari rannsókna þörf til að hægt sé að færa óyggjandi sönnur á viðkvæmni vindóttra hesta. Kanna þurfi hvort augnsjúkdómurinn MCOA leiði til sjónskerðingar. Jafnframt þurfi að rannsaka vindótta hesta af öðrum tegundum. Greint er frá því að tengsl milli erfðavísis og augnsjúkdóma hafi fundist í öðrum dýrategundum, til dæmis hundum og sebrafiskum. Sýnt hefur verið fram á að tengslin hafi haft áhrif á atferli hæna. Gunnfríður E. Hreiðarsdóttir, ráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, kveðst hafa vitað af slíkum rannsóknum. „En ég hef aldrei séð óyggjandi sönnur færðar á þetta. Ég veit ekki til þess að menn hafi merkt að vindóttir hestar séu viðkvæmari en aðrir.“ Grein Brunberg og samstarfsmanna hennar, Icelandic horses with the silver coat colour show altered behaviour in a fear reaction test, hefur verið birt í ritinu Applied Animal Behaviour Science.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira