Enski boltinn

Besti leikmaður brasilíska boltans vill fara til Man. Utd

Ribeiro er hér í bláa búningnum.
Ribeiro er hér í bláa búningnum.
Brasilíski miðjumaðurinn Everton Ribeiro er fullviss um að hann myndi henta fullkomlega á miðjuna hjá Man. Utd og segist vera spenntur fyrir því að fara þangað.

United hefur verið sterklega orðað við Ribeiro og talið líklegt að félagið geri tilboð í hann í janúar. Hann spilar með Cruzeiro í Brasilíu og varð meistari með liðinu á dögunum.

Hann var í kjölfarið valinn besti leikmaður brasilísku deildarinnar. Umboðsmaður hans hefur staðfest að hann sé í viðræðum við forráðamenn Man. Utd.

Talið er að leikmaðurinn muni kosta um 15 milljónir punda.

"Ég fylgist vel með enska boltanum. Það eru frábær lið þarna og draumalið fyrir alla leikmenn. Mér finnst ég vera tilbúinn til þess að spila þarna. Ef maður spilar með Cruzeiro þá getur maður spilað með hvaða liði sem er," sagði hinn 24 ára gamli Ribeiro.

"United er með Kagawa, Rooney og De Gea. Ég þekki þá vel því ég er alltaf að spila tölvuleiki þar sem þeir spila. Þá kynnist maður leikmönnunum betur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×