Lífið

Frændur hita upp fyrir Bill Burr

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Frændurnir skemmta saman á Bill Burr uppistandinu annað kvöld.
Frændurnir skemmta saman á Bill Burr uppistandinu annað kvöld.
Þeir Ari Eldjárn og Hugleikur Dagsson munu hita upp fyrir uppistandarann vinsæla, Bill Burr, sem skemmtir í Hörpu á morgun, sunnudag klukkan 20:00. Bill Burr er þekktur uppstandari en hann hefur einnig slegið í gegn sem leikari, í þáttunum Breaking Bad og kvikmyndinni The Heat, þar sem hann leikur ásamt Sandra Bullock.

Frændurnir Hugleikur og Ari eru spenntir að skemmta saman. „Við erum ólíkir og vegum hvorn annan upp,“ segir Hugleikur. Ari segir það mikla hátíð þegar þeir frændur koma saman. „Við höfum þekkst síðan við vorum pollar og höfum ótrúlega gaman af því að skemmta saman. Fórum meðal annars saman til Finnlands á sínum tíma,“ segir Ari.

Þeir eru báðir spenntir fyrir því að sjá Bill Burr skemmta. „Ég held mikið upp á Bill Burr,“ segir Hugleikur og Ari tekur undir: „Hann er einn af þeim allra bestu í dag. Það er heiður að fá að hita upp fyrir hann. Mér finnst í raun frábært hversu margir góðir uppistandarar eru búnir að koma til landsins. Ég man ekki eftir svona risum í bransanum hér, fyrir utan Eddie Izzard og Jerry Seinfeld,“ segir Ari.

Talandi um Seinfeld, athygli vakti að Hugleikur var í hvítum strigaskóm þegar á uppistandinu Djókaín í Háskólabíó. Einhverjir veltu því fyrir sér hvort það væri til heiðurs Seinfeld sem skemmti oft í hvítum strigaskóm. Blaðamaður hafði samband við hann stuttu eftir uppistandið og bar þetta undir grínistann. Hugleikur skellti upp úr – þótti þetta vera fyndið. Hann segir engar pælingar hafa farið fram varðandi skóbúnað.

Hann er ekki viss um í hvernig skóm hann ætlar að skemmta í á morgun. „Ég er bara ekki búinn að ákveða það,“ segir Hugleikur. Ari er heldur ekki búinn að gera ráðstafanir varðandi skó og svarar: „Skóbúnaður óákveðinn.“

Ljóst er að glatt verður á hjalla í Hörpunni á sunnudag. Hægt er að nálgast miða á midi.is. 

Hér að neðan má sjá uppistand með Bill Burr, af Youtube:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.