Innlent

Björt framtíð hvetur til betri vinnubragða við fjárlagavinnu

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Róbert Marshall formaður þingflokks BF, Brynhildur Pétursdóttir, fulltrúi BF í fjárlaganefnd og Guðmundur Steingrímsson, formaður flokksins.
Róbert Marshall formaður þingflokks BF, Brynhildur Pétursdóttir, fulltrúi BF í fjárlaganefnd og Guðmundur Steingrímsson, formaður flokksins.
Þingflokkur Bjartrar framtíðar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann leggur til að fjárframlög til Rannsóknasjóðs, Tækniþróunarsjóðs, Markáætlunar á sviði vísinda og tækni, til sóknaráætlunar sveitarfélaga, Kvikmyndasjóðs, samkeppnissjóða ýmissa skapandi greina, Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og til verkefna á sviði uppbyggingar græna hagkerfisins verði auknar til samræmis við fyrirliggjandi fjárfestingaáætlun sem samþykkt var í fjárlögum síðasta árs.

Þingflokkurinn telur að skynsamlegar fjárfestingar í greinum sem geta vaxið og skapað ný tækifæri í útflutningi og stuðlað að fjölbreyttara atvinnulífi sé Íslendingum nauðsyn. Skapa verði auknar tekjur til framtíðar.

Réttlætanlegt sé að verja hluta af arði af auðlindum eða hluta af tímabundnum skattstofnum, sem sagt bankaskatti, til slíkra fjárfestinga sem skapa arð í framtíðinni.

Einnig megi fjármagna uppbyggingu í ferðaþjónustu með því að innheima 14% virðisaukaskatt af hótelgistingu.

Þingflokkurinn bendir á að mikil vinna hefur farið fram á undanförnum árum þar sem sóknarfæri Íslendinga hafa verið kortlögð. Rétt sé að verja fjármunum til slíkrar sóknar nú. Reynslan innanlands og reynsla annarra þjóða sýnir að fjármunum sem varið er í samkeppnissjóði á sviði vísinda, tækni og skapandi greina og til skynsamlegrar uppbyggingar nýrra atvinnugreina skila sér margfalt til baka.

Þingflokkurinn segist jafnframt hafa lagt mikla áherslu á að fjárveitingar yrðu auknar til heilbrigðismála og styður breytingartillögur þess efnis.

Þá leggst Björt framtíð alfarið gegn niðurskurði til þróunarhjálpar.

Þingflokkurinn hvetur til betri vinnubragða í tengslum við fjárlagavinnuna. Nauðsynlegt sé að kafað sé í fjárlagagerðina af meiri dýpt en nú er, til þess að ná fram sem bestri nýtingu opinberra fjármuna - nýrrar hugsunar sé þörf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×