Björt framtíð hvetur til betri vinnubragða við fjárlagavinnu Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 16. desember 2013 15:22 Róbert Marshall formaður þingflokks BF, Brynhildur Pétursdóttir, fulltrúi BF í fjárlaganefnd og Guðmundur Steingrímsson, formaður flokksins.
Þingflokkur Bjartrar framtíðar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann leggur til að fjárframlög til Rannsóknasjóðs, Tækniþróunarsjóðs, Markáætlunar á sviði vísinda og tækni, til sóknaráætlunar sveitarfélaga, Kvikmyndasjóðs, samkeppnissjóða ýmissa skapandi greina, Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og til verkefna á sviði uppbyggingar græna hagkerfisins verði auknar til samræmis við fyrirliggjandi fjárfestingaáætlun sem samþykkt var í fjárlögum síðasta árs. Þingflokkurinn telur að skynsamlegar fjárfestingar í greinum sem geta vaxið og skapað ný tækifæri í útflutningi og stuðlað að fjölbreyttara atvinnulífi sé Íslendingum nauðsyn. Skapa verði auknar tekjur til framtíðar. Réttlætanlegt sé að verja hluta af arði af auðlindum eða hluta af tímabundnum skattstofnum, sem sagt bankaskatti, til slíkra fjárfestinga sem skapa arð í framtíðinni. Einnig megi fjármagna uppbyggingu í ferðaþjónustu með því að innheima 14% virðisaukaskatt af hótelgistingu. Þingflokkurinn bendir á að mikil vinna hefur farið fram á undanförnum árum þar sem sóknarfæri Íslendinga hafa verið kortlögð. Rétt sé að verja fjármunum til slíkrar sóknar nú. Reynslan innanlands og reynsla annarra þjóða sýnir að fjármunum sem varið er í samkeppnissjóði á sviði vísinda, tækni og skapandi greina og til skynsamlegrar uppbyggingar nýrra atvinnugreina skila sér margfalt til baka. Þingflokkurinn segist jafnframt hafa lagt mikla áherslu á að fjárveitingar yrðu auknar til heilbrigðismála og styður breytingartillögur þess efnis. Þá leggst Björt framtíð alfarið gegn niðurskurði til þróunarhjálpar. Þingflokkurinn hvetur til betri vinnubragða í tengslum við fjárlagavinnuna. Nauðsynlegt sé að kafað sé í fjárlagagerðina af meiri dýpt en nú er, til þess að ná fram sem bestri nýtingu opinberra fjármuna - nýrrar hugsunar sé þörf.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Sjá meira