Jólaundirbúningurinn með Rikku 5. desember 2013 14:00 Friðrika mun meðal annars sýna hvernig skreyta má piparkökuhús með auðveldum hætti. MYND/VALLI
Friðrika Hjördís Geirsdóttir mun leggja sitt af mörkum við að koma áhorfendum Stöðvar 2 í sannkallað hátíðarskap en fimmtudaginn 5. desember hefjast sýningar á splunkunýjum þáttum um jóla- og áramótaundirbúninginn. „Ég mun fá til mín góða gesti og fjalla um ýmislegt sem tengist jólaundirbúningnum. Við munum meðal annars búa til aðventukrans og elda jólamat. Má þar nefna hnetusteik, nautasteik og kalkún. Við munum líka skreyta jólatré og fjalla um umhirðu þeirra. Áhorfendur munu einnig fylgjast með því hvernig piparkökuhús er saman sett og hvernig má skreyta það með auðveldum hætti. Þá komum við til með að heimsækja Árbæjarsafn og kynna okkur gamlar jólahefðir, svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Friðrika. Þættirnir verða fjórir talsins. Fyrstu þrír munu tengjast jólunum en síðasti þátturinn, sem verður á dagskrá 26. desember, verður helgaður áramótunum. Hér fylgir smákökuuppskrift úr nýútkominni bók Friðriku; Veisluréttir Hagkaups.Saltaðar karamellusmákökur 20 stykki 250 g dökkt súkkulaði, saxað 3 msk. smjör 2 egg 120 g sykur 1 tsk. vanilludropar 60 g hveiti ¼ tsk. lyftiduft Hitið ofninn í 200°C. Bræðið helminginn af súkkulaðinu ásamt smjörinu yfir vatnsbaði. Hrærið egg, sykur og vanilludropa saman þar til að blandan verður ljós og létt. Bætið hveiti, lyftidufti, bræddu súkkulaðiblöndunni og afganginum af súkkulaðinu saman við og hrærið saman. Mótið litlar kúlur með teskeið og raðið á smjörpappírsklædda ofnplötu og bakið í 8–10 mínútur. Kælið.Krem: 250 g smjör 500 g flórsykur ¼ tsk. salt 85 g tilbúin karamella Hrærið smjörið upp og bætið flórsykrinum smám saman út í ásamt saltinu. Hrærið karamellunni saman við og smyrjið kreminu á milli smákakanna.
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira