Láta gott af sér leiða á eins árs afmæli Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 5. desember 2013 11:30 Stofnendur og eigendur As We Grow: María Th. Ólafsdóttir, Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir og Gréta Hlöðversdóttir. Mynd/Vigfús Birgisson.
Hönnunar- og sprotafyrirtækið As We Grow ætlar að láta ágóðann af sölu á húfum og treflum renna til Barnaspítala Hringsins í tilefni þess að eitt ár er liðið frá því vörur fyrirtækisins fóru á markað. Salan fer fram í Spark Design Space á Klapparstíg 33 í dag klukkan 17 til 20. Hugmyndin að As We Grow varð til út frá peysu sem ferðaðist á milli margra barna í níu ár, varð uppáhaldsflík þeirra allra og er enn í notkun. Hönnunin hefur skírskotun í nýtingu fyrri kynslóða þar sem horft er til þess að fatnaður sem endist lengi fái áhugaverða sögu og verði verðmætari. Sniðin eru miðuð við að hver flík geti vaxið með barninu og þannig fylgt því í nokkur ár. Með því að nota fatnaðinn margsinnis og í langan tíma er umhverfinu sýnd virðing um leið og verið er að skapa tilfinningalegt gildi hverrar flíkur. Fatnaðurinn er framleiddur í Perú úr alpaca ull sem hefur þá eiginleika að vera silkimjúk en um leið heldur hún góðum og stöðugum hita. Þess vegna hentar ullin vel fyrir barnafatnað. Hönnunin tekur mið af því að fatnaðurinn sé tímalaus og þægilegur fyrir börn frá sex mánaða allt til átta ára aldurs. Litavalið auðveldar síðan að blanda flíkunum saman.As We Grow var stofnað 2012 af þeim Grétu Hlöðversdóttur framkvæmdastjóra og hönnuðunum Guðrúnu Rögnu Sigurjónsdóttur og Maríu Th. Ólafsdóttur. Að undangenginni vöruþróun sem hófst 2010 voru fyrstu vörurnar settar á markað fyrir einu ári síðan og eru nú seldar í fimm löndum ásamt Íslandi. “Okkur langaði til að láta eitthvað gott af okkur leiða núna fyrir jólin og þar sem við erum að hanna og selja fatnað fyrir börn fannst okkur því liggja beint við að finna leið til að gleðja börnin á Barnaspítala Hringsins. Ágóðinn verður afhentur forsvarsmönnum Barnaspítalans með þá ósk að peningarnir nýtist vel,” segja eigendurnir.
Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira