Besta, holla smákakan - uppskrift Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 6. desember 2013 21:00
Berglind Sigmarsdóttir, höfundur metsölubókanna Heilsuréttir fjölskyldunnar og Nýir heilsuréttir fjölskyldunnar, efndi til samkeppni um bestu, hollu smákökuna í samvinnu við Bókafélagið sem gefur bækur hennar út. Fjöldi frábærra uppskrifta barst í keppnina enda mikil heilsuvakning sem hefur átt sér stað í samfélaginu og átti dómnefndin fullt í fangi með að finna út sigurvegarann. Í fyrsta sæti var Hulda Guðmundsdóttir með Hnetusmjörs- og súkkulaðiduo, í öðru Birgitta K. Árnadóttir með Valhnetuæði og í því þriðja Oddrún Helga Símonardóttir með Kókoshafrakökur með súkkulaði. Verðlaun fyrir fyrsta sætið voru jógúrt- og ísgerðarvél frá Heimilistækjum, Iittala skál og Twist and Sparkle sódatæki frá Ásbirni Ólafssyni, gjafakarfa með bökunarvörum frá Himneskri hollustu, bókapakki frá Bókafélaginu og geitamjólkurduft og jógúrtgerlar til jógúrtgerðar frá Geitunum þremur. Dómarar keppninnar voru Berglind Sigmarsdóttir, Sigurður Gíslason matreiðslumeistari og fyrrum landsliðsmaður í matreiðslu og Rósa Guðbjartsdóttir, ritstjóriBerglind Sigmarsdóttir höfundur Heilsuréttabókanna, Gyða Borg Barðadóttir sem tók við verðlaunum fyrir hönd Huldu Guðmundsdóttur sem varð í 1. sæti, Oddrún Helga Símonardóttir sem varð í 3. sæti, og Birgitta K. Árnadóttir sem varð í 2. sæti, Sigurður Gíslason matreiðslumaður og Rósa Guðbjartsdóttir ritstjóri sem skipuðu dómnefnd ásamt Berglindi.Sigurkakan - uppskrift Hnetusmjörs- og súkkulaðiduo 14-16 kökur2 dl möndlumjöl½ dl lífrænt dökkt kakó½ tsk vínsteinslyftiduft¼ tsk sjávarsalt100 gr. 70% súkkulaði1 ½ dl kókospálmasykur1 ½ Lífrænt gróft hnetusmjör½ dl kókosolía1 tsk vanilla1 stórt egg Forhitið ofn í 180°C. Blandið saman möndlumjöli, vínsteinslyftidufti, kakói og salti í skál. Hrærið saman í hrærivél kókosolíu, kókospálmasykri, vanilla og helming af hnetusmjörinu þar til blandan verður létt. Bætið egginu saman viðog hrærið vel. Þá er kakóblöndunni bætt við og enn á ný hrært vel. Að lokum er súkkulaðið saxað og bætt í blönduna og allt þetta hrært saman. Þá eru mótaðar litlar kúlur úr deiginu og þeim raðað á pappírsklædda bökunarplötu. Því næst er gerð hola með þumlinum í hverja köku og holan fyllt með hnetusmjöri. Bakist í tólf til fimmtán mínútur.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira