Lífið

Lady Gaga vill sniðganga Ólympíuleikana

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Lady Gaga vill að Bandaríkjamenn sniðgangi Ólympíuleikana sem verða haldnir í Sochi í Rússlandi á næsta ári.

"Mér finnst að við ættum alls ekki að fara á Ólympíuleikana. Mér finnst mjög rangt að svo mörg lönd styrki hagkerfi í landi sem virðir ekki réttindi samkynhneigðra," segir lafðin og bætir við að hún sé mjög döpur yfir því hve margir samkynhneigðir eru kúgaðir í Rússlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×