Tíminn að renna út hjá ríkisstjórn varðandi samflot í kjarasamningum Heimir Már Pétursson skrifar 20. nóvember 2013 16:27 mynd/gva
Forseti Alþýðusambandsins segir að stjórnvöld verði að gera breytingar á fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár, ef takast eigi að semja vopnahlé á vinnumarkaði. Að öðrum kosti tvístrist samningar til einstakra verkalýðsfélaga. Fundað verður með stjórnvöldum á morgun. Forystumenn Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sögðu fyrir um hálfum mánuði að stjórnvöld hefðu aðeins nokkra daga til að velja á milli vopnahlés á vinnumarkaði með gerð skammtímasamnings og undirbúningi langtímasamninga, eða samningar færu til einstakra verkalýðsfélaga og samflot yrði úr sögunni. Stjórnvöld gáfu út yfirlýsingu á föstudag í tengslum við samninga en Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir hana ekki duga til. Gera þurfi breytingar á fjárlögum næsta árs til að vopnahlé geti skapast. „Það lítur að heilbrigðiskerfinu. Eins og vitað er ríkir mikil óánægja í landinu varðandi uppleggið þar. Það snýr að þjónustu við atvinnuleitendur þar sem stendur til að skera mjög mikið niður þjónustu við þá, bæði varðandi ráðgjöf og virkar vinnumarkaðsaðgerðir. – Menntamál, verk- og tæknimenntun og menntun þeirra sem eru með litla menntun á vinnumarkaði og tækifæri til náms, svo ég nefni nokkur dæmi,“ segir Gylfi varðandi það sem breyta þurfi í fjárlagafrumvarpi. Forseti ASÍ segir að eins og staðan sé í dag séu enn líkur á að samningar tvístrist til einstakra félaga og stjórnvöld hafi ekki langan tíma til að koma í veg fyrir það. „Nei, það held ég ekki. Það þurfa að liggja fyrir svör. Við eigum einhverja fundi á morgun með fulltrúum stjórnvalda um það. En ég held að við séum á síðustu metrunum í því. Annað hvort tekst Þetta eða ekki,“ segir Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Sjá meira