Innlent

Tíminn að renna út hjá ríkisstjórn varðandi samflot í kjarasamningum

Heimir Már Pétursson skrifar
mynd/gva
Forseti Alþýðusambandsins segir að stjórnvöld verði að gera breytingar á fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár, ef takast eigi að semja vopnahlé á vinnumarkaði. Að öðrum kosti tvístrist samningar til einstakra verkalýðsfélaga. Fundað verður með stjórnvöldum á morgun.

Forystumenn Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sögðu fyrir um hálfum mánuði að stjórnvöld hefðu aðeins nokkra daga til að velja á milli vopnahlés á vinnumarkaði með gerð skammtímasamnings og undirbúningi langtímasamninga, eða samningar færu til einstakra verkalýðsfélaga og samflot yrði úr sögunni.

Stjórnvöld gáfu út yfirlýsingu á föstudag í tengslum við samninga en Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir hana ekki duga til. Gera þurfi breytingar á fjárlögum næsta árs til að vopnahlé geti skapast.

„Það lítur að heilbrigðiskerfinu. Eins og vitað er ríkir mikil óánægja í landinu varðandi uppleggið þar. Það snýr að þjónustu við atvinnuleitendur þar sem stendur til að skera mjög mikið niður þjónustu við þá, bæði varðandi ráðgjöf og virkar vinnumarkaðsaðgerðir. – Menntamál, verk- og tæknimenntun og menntun þeirra sem eru með litla menntun á vinnumarkaði og tækifæri til náms, svo ég nefni nokkur dæmi,“ segir Gylfi varðandi það sem breyta þurfi í fjárlagafrumvarpi.

Forseti ASÍ segir að eins og staðan sé í dag séu enn líkur á að samningar tvístrist til einstakra félaga og stjórnvöld hafi ekki langan tíma til að koma í veg fyrir það.

„Nei, það held ég ekki. Það þurfa að liggja fyrir svör. Við eigum einhverja fundi á morgun með fulltrúum stjórnvalda um það. En ég held að við séum á síðustu metrunum í því. Annað hvort tekst Þetta eða ekki,“ segir Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×