Í áfalli eftir vopnað rán við Hvassaleitisskóla Gissur Sigurðsson og Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 28. nóvember 2013 10:53 Tveir menn réðust að drengjunum þar sem þeir gengu til móts við Hvassaleitisskóla og rændu þá. mynd/daníel
Faðir annars 15 ára drengjanna sem rændir voru í austurborginni í gær segir þá mjög skelkaða eftir atvikið. Tveir menn réðust að þeim þar sem þeir gengu til móts við Hvassaleitisskóla og rændu þá farsímum og fleiri verðmætum. „Þeir eru þarna labbandi og á móti þeim koma tveir menn upp að þeim og heimta símana af þeim,“ segir faðirinn. „Þeir þráast aðeins við og þá er félagi sonar míns kýldur í andlitið en minn er tekinn nánast hálstaki og hníf beint að honum.“ Faðirinn segir drengina hafa látið mennina hafa símana og önnur verðmæti sem þeir höfðu í vösum sínum. „Þeir eru bara nógu skynsamir til að láta þá hafa draslið fyrst þeir eru ekki með neitt annað.“ Að sögn föðursins voru mennirnir með andlit sín hulin til hálfs og þekkja drengirnir þá líklega ekki aftur. „Nei ekki nema bara klæðnaðinn, enda ákveðið áfall að verða fyrir svona. Þeir eru í sjokki og ég líka. Ég hef líka alltaf haldið að það væri hægt að vera úti á kvöldin, svona í íbúðahverfunum. Það er mesta sjokkið í þessu,“ segir faðirinn. Hann reiknar ekki með að drengirnir treysti sér að vera úti á kvöldin á næstunni. „Lögreglan er bara komin með þetta mál og það sem kemur út úr því verður bara að koma í ljós, en þeir eru aðallega særðir á sál, það er það versta.“
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira