Játaði á sig hatursglæp en óttast ekki afleiðingar vegna afglapa lögreglu 29. nóvember 2013 19:57
Óskar Bjarnason, sem játaði á sig að hafa tekið þátt í að hella rauðum vökva og dreifa svínshausum á lóð sem ætluð er undir mosku, verður kallaður til yfirheyrslu lögreglunnar eftir helgi. Lögregla segist munu rannsaka málið sem hatursglæp og eru viðurlög við slíku fangelsi í allt að 2 ár. Í 233. grein almennra hegningarlaga segir að hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ráðist opinberlega á mann eða hóp manna, til dæmis vegna trúar þeirra skuli sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum.Rannsókn málsins virðist, í skásta falli, hafa verið, klúðursleg. Þá greindi Fréttablaðið frá því í dag að borgarstarfsmenn sem hreinsuðu lóðina hafi hent stórum hluta sönnunargagna í málinu fyrir framan lögregluna sem þar var að störfum. Óskar segist, af þeim sökum, ekki hafa áhyggjur af framvindu mála. „Hvað ætla þeir að koma með? Þeir hafa ekkert þeir eru búnir að henda sönnunargögnunum, sem þeir segja að hafi verið sönnunargögn. Þetta finnst allt á mynd en það finnast engin sönnunargögn," segir Óskar. Lögreglufulltrúinn sem fréttastofa ræddi við í dag sagði glæpinn lítinn og saklausan og bar hann að jöfnu við andstöðu Vantrúarmanna við Þjóðkirkjuna. Það sem liggur málinu því til grundvalllar eru upplýsingar sem fjölmiðlafólk hefur aflað síðustu daga. Fréttastofa lét Lögreglufulltrúa í té símanúmer og upplýsingar tengdar málinu í dag, eftir að játning Óskars kom fram á vísi. Lögreglufulltrúinn kvaðst þó ekki hafa tíma fyrir málið að svo stöddu en bað fréttamann um að skila því til hins grunaða, Óskars að hafa samband við sig eftir helgi.Þess má geta að Stefán Eiríksson, lögreglustjóri kvaðst ekki hafa heyrt neitt af þessu máli og vildi því ekki tjá sig við fréttastofu.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira