Innlent

Segja fækkun sjúkraflutningsmanna hættuleik

Samúel Karl Ólason skrifar
Fækka á sjúkraflutningamönnum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands um fjóra.
Fækka á sjúkraflutningamönnum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands um fjóra. Mynd/Pjetur Sigurðsson
Stjórn Lögreglufélags Suðurlands hefur sent frá sér ályktun vegna niðurskurðar sem boðaður hefur verið í mönnun sjúkraflutninga Heilbrigðisstofnunnar Suðurlands í Árnessýslu. Þar á að fækka sjúkraflutningarmönnum úr 16 í 12 um áramótin.

Með breytingunum verður sjúkraflutningamönnum á vakt fækkað úr fjórum í tvo, ellefu tíma sólarhringsins. Félagið segir það vera hættuspil. Því svæðið sem sjúkraflutningamennirnir sjá um sé stórt og verkefnin séu oft tímafrek. Því gæti útkallstíminn lengst við breytingarnar og svo gæti farið að engan sjúkrabíl væri að fá. 

Hér að neðan er ályktun Lögreglufélagsins í heild sinni:

Öryggi borgaranna stefnt í voða?

Stjórn Lögreglufélags Suðurlands harmar fregnir af boðuðum niðurskurði Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, hvað varðar fyrirkomulag sjúkraflutninga í Árnessýslu. Fækkun sjúkraflutningsmanna á vakt hverju sinni úr fjórum í tvo, 11 tíma sólarhringsins er hættuspil. Svæðið sem sjúkraflutningsmönnum  stofnunarinnar er ætlað að sinna er stórt og verkefnin oft á tíðum tímafrek. Útkallstími í neyðartilvikum kann við boðaðar breytingar að lengjast, jafnvel gæti það farið svo að engan sjúkrabíl væri að fá. Það er ekkert launungarmál að niðurskurður af þessum toga getur kostað mannslíf!

Stjórn Lögreglufélags Suðurlands hvetur til þess að hætt verði við boðaðar breytingar á mönnun sjúkrabifreiða Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Árnessýslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×