Íslenski boltinn

Aron Elís framlengdi við Víkinga

Aron og Friðrik Magnússon, formaður knattspyrnudeildar.
Aron og Friðrik Magnússon, formaður knattspyrnudeildar. mynd/vikingur.net
Einn efnilegasti knattspyrnumaður landsins, Aron Elís Þrándarson, er búinn að skrifa undir nýjan samning við Víking.

Á víkingur.net, stuðningsmannasíðu Víkinga, er staðfest að Aron Elís sé búinn að skrifa undir samning til ársins 2016.

Aron Elís fór á kostum með Víkingum síðasta sumar. Skoraði 14 mörk og varð markahæstur í 1. deildinni.

Hann var svo valinn leikmaður ársins í deildinni af þjálfurum og fyrirliðum á hófi fótbolta.net. Hann var svo valinn bæði bestur og efnilegastur á lokahófi Víkinga.

Víkingur tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni síðasta sumar og verður áhugavert að fylgjast með Aroni í efstu deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×