Naglarnir loksins fjarlægðir í aðgerð í gær Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 29. október 2013 15:55 Lenu líður betur í dag og gleðst yfir því að mál hennar séu komin í farveg. „
Mér var rúllað inn í aðgerð klukkan eitt í gær og allir fjórir naglarnir voru teknir út hendinni,“ segir Lena Margrét Konráðsdóttir sem brotnaði illa á hendi fyrir um sex vikum þear hún var úti að hlaupa. Setja þurfti fjóra nagla í höndina en tveimur vikum síðar fóru þeir að stingast út úr höndinni.Vísir fjallaði um málið í gær þegar Lena var að bíða eftir að komast í skoðun á Sjúkrahúsinu á Akureyri. „Þetta eru miklu meiri umbúðir sem ég er með núna og aðgerðin tók líka miklu meiri tíma en þeir bjuggust við,“ segir Lena sem var tekin til aðgerðar í gær á sjúkrahúsinu þegar annar bæklunarlækna á vakt losnaði úr annarri aðgerð. Lena segir að læknarnir hennar á Siglufirði hefðu verið allir af vilja gerðir til að hjálpa henni en þar sem þar er enginn bæklunarlæknir treysti enginn læknanna sér til þess að fara gegn fyrirmælum læknisins sem gerði upphaflegu aðgerðina og fyrirskipaði að naglarnir skildu vera í höndinni í átta vikur. Það var því ekki fyrr en naglarnir voru bókstaflega farnir að stingast út úr höndinni sem læknar gerðu eitthvað í málum Lenu. „Einn fingurinn er ennþá illa brotinn en þeir gátu samt fjarlægt naglann. Ég er svo mikil glingurdolla að ég var með voðalega fína hringa á öllum fingrum, þess vegna aflöguðust þeir svona illa. Ætli það sé ekki gott ráð til allra hlaupara að hlaupa ekki með skart á fingrum, það getur farið illa,“ segir Lena. Lena segir að henni líðir betur og er fegin að vera komin með einhverja lausn á sínum málum. Hún hefur fengið tíma í endurkomu hjá pólska lækninum sem gerði upphaflegu aðgerðina en hann hefur verið erlendis síðan.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Sjá meira