Innlent

Naglarnir loksins fjarlægðir í aðgerð í gær

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Lenu líður betur í dag og gleðst yfir því að mál hennar séu komin í farveg.
Lenu líður betur í dag og gleðst yfir því að mál hennar séu komin í farveg.
„Mér var rúllað inn í aðgerð klukkan eitt í gær og allir fjórir naglarnir voru teknir út hendinni,“ segir Lena Margrét Konráðsdóttir sem brotnaði illa á hendi fyrir um sex vikum þear hún var úti að hlaupa. Setja þurfti fjóra nagla í höndina en tveimur vikum síðar fóru þeir að stingast út úr höndinni.

Vísir fjallaði um málið í gær þegar Lena var að bíða eftir að komast í skoðun á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

„Þetta eru miklu meiri umbúðir sem ég er með núna og aðgerðin tók líka miklu meiri tíma en þeir bjuggust við,“ segir Lena sem var tekin til aðgerðar í gær á sjúkrahúsinu þegar annar bæklunarlækna á vakt losnaði úr annarri aðgerð.

Lena segir að læknarnir hennar á Siglufirði hefðu verið allir af vilja gerðir til að hjálpa henni en þar sem þar er enginn bæklunarlæknir treysti enginn læknanna sér til þess að fara gegn fyrirmælum læknisins sem gerði upphaflegu aðgerðina og fyrirskipaði að naglarnir skildu vera í höndinni í átta vikur. Það var því ekki fyrr en naglarnir voru bókstaflega farnir að stingast út úr höndinni sem læknar gerðu eitthvað í málum Lenu.

„Einn fingurinn er ennþá illa brotinn en þeir gátu samt fjarlægt naglann. Ég er svo mikil glingurdolla að ég var með voðalega fína hringa á öllum fingrum, þess vegna aflöguðust þeir svona illa. Ætli það sé ekki gott ráð til allra hlaupara að hlaupa ekki með skart á fingrum, það getur farið illa,“ segir Lena.

Lena segir að henni líðir betur og er fegin að vera komin með einhverja lausn á sínum málum. Hún hefur fengið tíma í endurkomu hjá pólska lækninum sem gerði upphaflegu aðgerðina en hann hefur verið erlendis síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×