Hanskar Daða upp í hillu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. október 2013 13:33 Daði fagnar Íslandsmeistaratitlinum með FH sumarið 2009. Mynd/E.Stefán
Markvörðurinn Daði Lárusson hefur lagt hanskana á hilluna. Hann tilkynnti stuðningsmönnum FH ákvörðun sína í dag. Daði lék fyrst með FH sumarið 1992 þar sem hann átti eftir að spila stærstan hluta ferilsins. Hann afrekaði að spila sinn 300. deildarleik í sumar en hann leysti Róbert Örn Óskarsson af hólmi í marki Hafnfirðinga þegar á þurfti að halda. Daði varð fimm sinnum Íslandsmeistari með FH á árunum 2004-2009. Hann hélt í raðir erkifjendanna í Haukum árið 2010 og lék með þeim rauðklæddu í tvö tímabil. Daði er annar leikmaður FH sem leggur skóna á hilluna í lok leiktíðar. Freyr Bjarnason gerði slíkt hið sama á dögunum.Tilkynningu Daða, sem varð fertugur á dögunum, má sjá hér að neðan.Kæru FH-ingar !Það er runnin upp sú stund að ég verð að leggja skó og hanska á hillu og láta þetta gott heita. Önnur verkefni bíða mín og er mínu stærsta verkefni í lífinu hingað til sem knattspyrnumaður hjá FH því hér með lokið.Ég geng mjög sáttur frá borði og er vægast sagt ánægður með þann feril sem er að baki. Að fá að taka þátt í öllum þeim ævintýrum sem þessi stærsti og öflugasti klúbbur seinni ára á Íslandi hefur afrekað, er vitaskuld hreinn draumur fyrir hvern knattspyrnumann.Ég er ofboðslega þakklátur þeim sem að því komu, bæði stjórn og þjálfurum FH, fyrir að gefa mér færi á að lenda ferlinum á þeim stað sem er manni hvað kærastur.Stórkostleg uppbygging hefur átt sér stað í Krikanum frá því að fyrsta Íslandsmeistaratitli FH í knattspyrnu var fagnað og upphafi þess, sem ég leyfi mér að kalla gullaldartímabil knattspyrnudeildarinnar, hófst fyrir alvöru. Að fá að vera þátttakandi í því frá byrjun eru því algjör forréttindi fyrir mig sem FH-ing. Það verður því ekki síður spennandi fyrir mig að fá að fylgjast með klúbbnum á hliðarlínunni vaxa og dafna í komandi framtíð.Bestu þakkir og kveðjur til ykkar allra !!Við erum FH.......Daði Lárusson
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira