Máni mun ekki mæta á leiki Keflavíkur og Stjörnunnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. október 2013 18:09 Þorkell Máni Pétursson. Mynd/Daníel
Þorkell Máni Pétursson verður ekki áfram aðstoðarþjálfari Keflavíkur en þetta staðfesti hann í dag í samtali við fótbolta.net. Hann hefur ekki tíma í fótboltann vegna anna. Máni er harður stuðningsmaður Stjörnunnar en hefur miklar taugar til Keflvíkinga eftir sumarið. Máni kom til Keflavíkur um mitt sumar en Keflavíkurliðið náði frábærum endakafla á mótinu undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar. Kristján tók við Keflavíkurliðinu í erfiðri stöðu af Zoran Ljubicic og fékk síðan Mána til að koma í þjálfarateymið sitt. „Þetta er of mikið álag á fólkið í kringum mig. Ég er að reka umboðsskrifstofu og fjölmiðlasamsteypuna Harmageddon. Ég fékk að fara í þetta ævintýri fyrir einstaka þolinmæði vinnufélaga míns en ég hef ekki tíma í að halda áfram," sagði Þorkell Máni við Fótbolta.net í dag. „Ég myndi ekki hugsa mig tvisvar um að halda áfram ef ég hefði tök á því. Ef ég kæmi eitthvað nálægt þjálfun næsta sumar þá eru allar líkur á því að það yrði í Keflavík," sagði Máni en það má sjá allt viðtalið með því að smella hér. Keflavík tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum eftir að Máni kom á móti toppliðum KR og FH. Síðan komst liðið á skrið og náði alls í 17 stig í 9 leikjum frá 7. ágúst til 22.september. Keflavík endaði mótið síðan í 9. sæti eftir tap á móti Blikum í lokaumferðinni. Máni segist ætla að styðja Keflvíkinga sem og sína menn í Stjörnunni næsta sumar. „Ég styð Keflavík og Stjörnuna. Ég verð í stúkunni með Má (Gunnarssyni) að styðja Keflavík en ég verð heima þegar Stjarnan og Keflavík mætast," sagði Máni ennfremur í viðtalinu á fótbolti.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Enski boltinn Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ Körfubolti „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Dæmd í fjögurra ára fangelsi Fótbolti „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Körfubolti Búist við að Salah verði hent úr hóp Enski boltinn Þriggja ára strákur setti heimsmet í skák Sport Langhlauparar í meiri hættu að fá krabbamein Sport Fleiri fréttir Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Damir Muminovic til Grindavíkur Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Jónatan og formaður hissa á tali um KR-löngun Sjá meira