Erlent

Pistorius ræður til sín réttarmeinafræðinga

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Réttarhöldin hefjast í mars á næsta ári og á Pistorius yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann sakfelldur.
Réttarhöldin hefjast í mars á næsta ári og á Pistorius yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann sakfelldur. mynd/afp
Spretthlauparinn Oscar Pistorius hefur ráðið hóp réttarvísindamanna frá Bandaríkjunum til þess að gefa sérfræðiálit sitt í fyrirhuguðum réttarhöldum gegn sér og kasta rýrð á sönnunargögn sækjenda í málinu.

Pistorius er ákærður fyrir morð á Reevu Steenkamp, fyrrum unnustu sinni, en hún var skotin til bana á heimili Pistoriusar þann 14. febrúar.

Réttarhöldin hefjast í mars á næsta ári og á Pistorius yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann sakfelldur.


Tengdar fréttir

Pistorius fyrir dómara í dag

Suður-afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius kemur aftur fyrir dómara í dag en þá verður tekin fyrir beiðni hans um að verða látinn laus úr haldi gegn tryggingu.

Pistorius aftur fyrir rétti

Suður Afríski hlauparinn Oscar Pistorius sem grunaður er um að hafa myrt sambýliskonu sína mætti fyrir rétt í Pretoríu í morgun. Búist er við að saksóknari leggi fram ákæru á hendur honum um morð að yfirlögðu ráði.

Pistorius-lögga rannsökuð vegna morðtilraunar

Mál spretthlauparans Oscars Pistorius er farið að minna á atburðarás reyfara, en nýjasti snúningur málsins er sá að lögreglumaðurinn Hilton Botha, sá sem hefur farið fyrir rannsókninni, sætir nú rannsókn fyrir morðtilraun.

Mál Pistoriusar tekur á sig skýrari mynd

Í byrjun vikunnar var Oscar Pistorius formlega ákærður fyrir morð að yfirlögðu ráði. Hér má sjá skýringarmyndir af atburðarásinni í febrúar, þegar unnusta hans lét lífið.

Nike segir tímabundið upp samningi við Pistorius

Íþróttavöruframleiðandinn Nike hefur sagt tímabundið upp samningi sínum við frjálsíþróttakappann Oscar Pistorius. Suður-Afríkumaðurinn er sakaður um að hafa myrt kærustu sína að yfirlögðu ráði.

Ebba Guðný segir að Oscar sé bugaður af sorg

Oscar Pistorius spretthlaupari er bugaður af sorg, segir Ebba Guðný Guðmundsdóttir bókaútgefandi og heilsukokkur. Oscar er mikill vinur Ebbu Guðnýjar og fjölskyldu hennar. Oscar var á dögunum handtekinn, grunaður um morð á unnustu sinni. Ebba segir í samtali við Lífið, fylgiblað Fréttablaðsins, að hann hafi sent fjölskyldunni einstaka skilaboð frá því að hann var handtekinn og þau sent skilaboð á móti.

Skot hljóp úr byssu hjá Pistorius á veitingastað

Oscar Pistorius, sem grunaður er um að hafa myrt kærustu sína síðastliðinn föstudag, var nærri því að slasa vin sinn með byssuskoti að því er Suður-Afrískir fjölmiðlar greina frá.

Segir Pistorius vera á barmi sjálfsmorðs

Suður-afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius, sem sakaður er um að hafa myrt kærustu sína með köldu blóði í síðasta mánuði, er á barmi sjálfsmorðs. Þetta segir góðvinur Pistorius, Mike Azzie, í nýrri heimildarmynd breska ríkisútvarpsins um hlauparann.

Dagur þrjú á enda

Þriðja degi réttarhalda um það hvort spretthlauparinn Oscar Pistorius verði látinn laus gegn tryggingu er lokið. Haldið verður áfram þar sem frá var horfið í fyrramálið.

Síðustu myndirnar af Reevu

Síðustu myndir sem teknar voru af Reevu Steenkamp heitinni, unnustu Oscars Pistorius. Á myndunum, sem fengnar eru úr öryggismyndavél, sést Reeva þegar hún er að koma að heimili sínu, þann þrettánda febrúar, daginn áður en hún lést.

"Pistorius hefur það ekki í sér að gera svona hlut“

"Við erum viss um að þetta hafi verið óviljaverk,“ segir Sigríður Hanna Jóhannesdóttir, amma Hafliða Hafþórssonar sem hefur verið náinn vinur hlauparans Oscar Pistorius, í viðtali við suður-afríska blaðið Mail & Guardian.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×