Erlent

Síðustu myndirnar af Reevu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Reeva Steenkamp kemur heim til sín.
Reeva Steenkamp kemur heim til sín.
Síðustu myndir sem teknar voru af Reevu Steenkamp heitinni, unnustu Oscars Pistorius, hafa verið birtar opinberlega. Á myndunum, sem fengnar eru úr öryggismyndavél, sést Reeva þegar hún er að koma að heimili sínu, þann þrettánda febrúar, daginn áður en hún lést. Einungis tíu mínútum eftir að Reeva kom í húsið kom Pistorius sjálfur á BMW bifreið sinni.

Myndirnar birtust fyrst í sjónvarpsþætti í Suður Afríku. Í þættinum var líka talað við foreldra Reevu, þau Barry og June. Þar lýstu þau þeirri sorg sem þau ganga nú í gegnum og hvernig þau fengu að frétta af andláti dóttur sinnar á Valentínusardaginn.

Barry segist hafa fengið símtal um klukkan hálfátta um morguninn og hann verið spurður að því hvort hann ætti dóttur sem héti Reeva. Þá hafi viðkomandi sagt að það væri betra að hann heyrði það í gegnum símann en að frétta það í fjölmiðlum að Reeva væri látin.

Það er hægt að lesa meira um málið á Daily Mail.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×