Heilbrigðisráðherra kynnti aðgerðir Jón Júlíus Karlsson skrifar 12. september 2013 11:29 Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans og Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra. Mynd/Pjetur
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Björn Zoëga, forstjóri Landspítala, kynntu á blaðamannafundi í dag sameiginlega yfirlýsingu um aðgerðir sem ráðist verður í til að bæta stöðu lyflækningasviðs sjúkrahússins. Auk Kristjáns Þórs og Björns komu að kynningunni þau Vilhelmína Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri lyflækningasviðs og Már Kristjánsson, forstöðumaður fræðasviðs lyflækninga. Fyrirhugaðar aðgerðir snúa að því að draga úr álagi á starfsemi sviðsins, bæta möguleika til þess að útskrifa sjúklinga af deildinni að lokinni meðferð, styrkja faglega forystu og rekstrarlega ábyrgð, auk aðgerða til að efla framhaldsmenntun og stuðla að nauðsynlegri nýliðun í lyflækningum. Áfram verður unnið að því að styrkja og efla bráðastarfsemi spítalans með því að koma henni undir eitt þak. Yfirlýsingin er eftirfarandi:Yfirlýsing heilbrigðisráðherra og forstjóra LSH um aðgerðir til að bæta stöðu lyflækningasviðs LSH 1. Dregið verður úr álagi á starfsemi lyflækningasviðs. Ráðstafanir verða gerðar til leysa fráflæðisvanda LSH, sem er fyrst og fremst vegna skorts á vistunarúrræðum fyrir aldraða sem lokið hafa meðferð á LSH. Gert er ráð fyrir að LSH skili ráðherra sérstakri aðgerðaáætlun eigi síðar en 20. september 2013. 2. Gerðar verða breytingar á skipulagi lyflækningasviðs sem styrkja faglega forystu og rekstrarlega ábyrgð. a. Yfirlæknir almennra lyflækninga verður settur í september og staðan síðan auglýst. b. Yfirlæknir almennra lyflækninga verður formaður sérstaks fimm manna starfshóps lækna sviðsins sem skila á forstjóra og framkvæmdastjórn LSH skriflegum tillögum sem m.a. eiga að taka til eftirfarandi þátta: 1. Mat á fýsileika þess að skipta lyflæknissviði í almennar lyflækningar og sérgreina lyflækninga 2. Skilgreining verkefna almennra og sérgreina lyflækninga, 3. Mat á mannaflsþörf með hliðsjón af klínískum og akademískum verkefnum. Hópurinn skilar tillögum sínum fyrir lok október 2013. c. Framhaldsmenntun í almennum lyflækningum verður efld með opinberri viðurkenningu heilbrigðis- og menntamálayfirvalda ásamt sérstakri fjárveitingu til verkefnisins næstu 5 árin. Þannig verður skrifstofa framhaldsmenntunarstjóra styrkt til að skapa betri umgjörð um framhaldsnámið. Undir forystu framkvæmdastjóra lyflækningasviðs og forseta læknadeildar HÍ verður skipaður starfshópur sem skila skal ráðherra tillögum um hvernig efla skal háskólahlutverk LSH, hvernig nýliðun í lyflækningum verður tryggð og möguleikar til starfsþróunar auknir. Hópurinn skilar tillögum sínum í lok febrúar 2014 3. Stuðningur við störf lækna verði aukinn verulega með því að nýta betur krafta og hæfni hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, klínískra lyfjafræðinga, ritara sérgreina og eftir föngum annarra starfsstétta. Samstarfshópur með fulltrúum ofangreindra stétta verður settur á fót undir forystu framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga. Hópurinn skilar forstjóra og framkvæmdastjórn LSH tillögum fyrir lok nóvember 2013 4. Áfram verður unnið að því að styrkja og efla bráðastarfsemi spítalans með því að koma henni undir eitt þak. 5. LSH mun í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld halda áfram að endurskoða skipulag læknisþjónustu á Íslandi í því skyni að bæta aðgengi og gæði þjónustunnar um allt land, ásamt því að auka hagkvæmni. Þetta snertir ekki síst þjónustu vegna langvinnra sjúkdóma sem nú er veitt á þremur þjónustustigum – í heilsugæslunni, á stofum sjálfstætt starfandi sérfræðilækna og á göngudeildum Landspítala og annarra heilbrigðisstofnana. 12. september 2013
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira