Dreifði Snapchat-nektarmynd af unglingsstúlku Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 12. september 2013 16:47 Myndir sem fólk, börn og unglingar taka af sjálfum sér og sent einhverjum einum, lenda oft í höndum mun fleiri manna. mynd/365
Lögreglunni á höfuðborgasvæðinu berast reglulega fyrirspurnir og ábendingar frá foreldrum og öðrum vegna eineltis á netinu. Í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu ögreglunnar segir lögreglan að eitt af því hryggilegasta sem þau heyri af sé þegar börn, oftar en ekki unglingar, eru göbbuð til að taka af sér myndir sem síðan er dreift til annarra. Þórir Ingvarsson, rannsóknarlögreglumaður segir að þessi mál séu ekki endilega að færast í aukana, en því sé þó erfitt að svara án þess að það sé kannað sérstaklega. Þetta sé því miður fylgifiskur internet-samskipta og aukinnar netnotkunar barna. Hann segir að einelti hafi færst yfir á netið en það sé í sjálfu sér ekki nýtt, það sé þróun sem hafi verið síðasta áratuginn. Vandamálið að hans sögn séu oft Facebook-hópar og tölvupóstar þar sem myndum af fólki er dreift. Myndum sem fólk, börn og unglingar hafa tekið af sjálfum sér og sent einhverjum einum, lendi í höndum mun fleiri manna.Manaði stúlkuna til að senda mynd af sér Móðir 13 ára stúlku sem sendi félaga sínum mynd af sér þar sem hún var ber að ofan, segir síðustu daga hafa verið erfiða á heimilinu, eftir að í ljós kom að strákurinn vistaði myndina og áframsendi hana til vinar síns. Þaðan fór myndin, sem stúlkan sendi í gegnum appið Snapchat í hendur mun fleiri krakka. Móðir fékk símtal frá móður annars barns í skólanum sem sagði henni frá málinu. Við nánari eftirgrennslan hennar hafi komið í ljós að margir í unglingadeild skólans hafi séð myndina, bæði strákar og stelpur. Stúlkan áttaði sig alls ekki á því að myndin færi í hendur svona margra. Hún segir félaga sinn hafa manað sig til að senda sér mynd og hún hafi að lokum látið undan þrýstingnum. Nokkrum dögum síðar hafi myndin verið komin í dreifingu meðal flestra unglinga í fjórum grunnskólum Akureyrar. Stúlkunni líði að sjálfsögðu mjög illa yfir eins og rétt sé hægt að ímynda sér. Móðirin segir að stúlkan hafi orðið mjög hrædd við að fara út og verið hrædd að hitta þennan strák og vini hans, þar sem hún vissi ekki hvað þeir myndu segja við sig. Stúlkan kveið fyrir því að fara í skólann eftir að hún áttaði sig á hversu margir hefðu séð myndina og hafði móðirin samband við skólann og þar hafi verið tekið afar vel á málum, það sé ómetanlegt. Umsjónarkennari bekkjarins fór yfir málið með bekkjarsystkinum stúlkunnar. Skólastystkini hennar hafi svo verið óskaplega góð við hana þegar hún mætti daginn eftir og þau hafi sýnt henni mikinn stuðning. Jafnframt hafi verið rætt við alla nemendur unglingastigsins, bæði um þetta mál og almennt hvaða áhrif það geti haft, bæði það að senda svona myndir frá sér og að dreifa svona myndum sem krakkar komast yfir. Yfirmenn skólans höfðu samband við fleiri skóla í bænum og fóru fram á það að þeir sem hefðu myndina í fórum sér myndu eyða henni og stoppa dreifingu hennar.Hafa tilkynnt lögreglu um málið „Við foreldrarnir höfum talað við lögregluna sem áframsendir málið til barnaverndar, þar sem fjallað verður um málið og ákveðið verður með framhaldið,“ segir móðirin. Hún vill koma því á framfæri við foreldra og aðra að fræða börnin sín um þessar hættur, það sé ekki nóg að koma í veg fyrir samskipti barna sinna við ókunnuga. Börn og unglingar verða að gera sér grein fyrir því að svona myndir og það sem þau segja á netinu verður alltaf til ef enginn eyðir því og það sé vont að vera allt í einu kominn í þá stöðu að ráða ekki hverjir skoða og hverjir senda myndir af manni sjálfum. Post by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.
Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Fleiri fréttir Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ Sjá meira