Veðrið færist í aukana 15. september 2013 19:07
Útköllum björgunarsveita hefur fjölgað eftir því sem liðið hefur á daginn og veðrið sem nú gengur yfir landið færst í aukana. Frá því klukkan 15:00 hafa sveitir verið kallaðar út vegna foks á þakplötum í Vestmannaeyjum, Hornafirði, Laugarvatni, Mýrdal, Hafnarfirði, Eyjafjallahreppi og Hveragerði auk þess sem í Bolungarvík er stórt gróðurhús að fjúka. Fastir bílar hafa verið sóttir á Hrafnseyrarheiði, á Kaldadal, Kjalveg og Breiðdalsheiði þar sem sjö manns sitja fastir, þar af tvö börn. Björgunarsveitir frá Djúpavogi og Breiðdalsvík eru nú á leið til aðstoðar fólkinu. Einnig barst tilkynning um að bíll hafi farið útaf veginum í Vatnsskarði og eru björgunarsveitir á leið þangað. Þrír voru í bílnum og sluppu þeir með skrekkinn. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að Suðaustanlands, frá Hornafirði austur í Berufjörð verða áfram hættulegar hviður niður af bröttum fjöllum, allt að 50-60m/s alveg fram á nótt suðaustanlands frá Hornafirði austur í Berfjörð. Annars allt að 30-40 m/s sunnan undir Vatnajökli og við Lómagnúp og undir Eyjafjöllum. Ekki er útlit fyrir að taki að lægja á þessum slóðum fyrr en þegar vel er komið fram á morgundaginn. Þá er einnig reiknað með hviðum á Kjalarnesi og á sunnanverðu Snæfellsnesi fram á nóttina. Á fjallvegum norðan- og norðaustanlands verður takmarkað skyggni í hríðarveðri allt til morguns. Á Norðurlandi frá Skagafirði og austur úr ofan 200 metra hæðar og austanlands ofan 400-500 m. Í kvöld gerir einnig krapa og hálku á Holtavörðuheiði.Á Vestfjörðum er þungfært og óveður á Hrafnseyrarheiði en krap á Dynjandisheiði Hálfán og Kleifaheiði en hálkublettir á Mikladal. Hálkublettir eru svo á Steingrímsfjarðarheiði en snjóþekja og éljagangur á Þroskafjarðarheiði.Norðanlands er krapi og éljagangur er á Vatnsskarði, Öxnadalsheiði og Víkurskarði og einnig hálka og éljagangur á Mývatnsöræfum. Þá er hálka á Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði þar sem einnig er skafrenningur eða snjókoma. Austanlands er svo hálka og skafrenningur á Fjarðarheiði en krapasnjór er Fagradal og Vatnsskarði eystra. Á Öxi er þæfingsfærð og óveður. Ófært er í Hamarsfirði vegna óveðurs. Einnig er ófært á Hellisheiði eystri. Á Suðausturlandi er ófært milli Kirkjubæjarklaustur og Freysness vegna óveðurs. Á hálendisvegum má svo búast við krapa eða snjóþekju ásamt éljagangi og slæmum veðurskilyrðum.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira