Innlent

Níu Albana leitað hér á landi

Þrettán Albanar sem komu hingað til lands í tengslum við landsleik Íslands og Albaníu á þriðjudaginn síðastliðinn skiluðu sér ekki í leiguflug heim eftir leikinn.

Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV.

Tveir þessara þrettán Albana höfðu sótt um hæli á Íslandi fyrir landsleikinn og tveir gerðu slíkt hið sama eftir leikinn.

Ekki er vitað hvar þeir eru niðurkomnir, en líklegt þykir að þeir séu staddir hér á landi. Ekkert er vitað um afdrif hinna níu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×