Vilja að stjórnvöld efni loforð 5. september 2013 22:32 Mynd tengist frétt ekki beint
Öryrkjabandalag Íslands og Landssamband eldri borgara boða til hvatningarfundar á Austurvelli á þriðjudag í næstu viku. Markmiðið með honum er að hvetja stjórnvöld til að halda áfram að efna loforð sem gefin voru fyrir síðustu kosningar um að afnema kjara- og réttindaskerðingar á greiðslum til eldri borgara og öryrkja árið 2009. Á sumarþingi afturkallaði Alþingi tvær af þeim sex skerðingum sem gerðar voru á kjörum þessara hópa. Vonast er til þess að með góðri hvatningu á fundinum muni stjórnvöld standa við loforð um að afnema allar sex skerðingarnar. Fundurinn hefst klukkan þrjú. „Kjaranefnd LEB hefur sýnt fram á að á síðustu fjórum árum hafa kjör eldri borgara rýrnað um 20% og nýbirt skýrsla sem Talnakönnun gerði fyrir ÖBÍ sýnir að á sama tíma og almenn launavísitala hækkaði um 23,5% og verðbólga var 20,5% hækkuðu heildartekjur öryrkja um 4,7%. Þar kemur einnig fram að bætur almannatrygginga til öryrkja árin 2008-2013 hafa ekki náð að halda í við verðlagshækkanir, almenna launaþróun né hækkun lægstu launa og er munurinn gríðarlegur. Bilið er stöðugt að breikka og er nú svo komið að lægstu laun hafa hækkað nær tvöfalt á við bætur öryrkja. Þetta undirstrikar nauðsyn þess að skerðingarnar sem gerðar hafa verið á kjörum eldri borgara og öryrkja verði leiðréttar afturvirkt. Það er ánægjuefni að forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hafa áréttað eftir kosningar að staðið verði við gefin loforð um leiðréttingu. Við væntum þess að í fjárlagafrumvarpinu sem lagt verður fram 1. október næstkomandi megi sjá efndir þeirra orða. ÖBÍ og LEB hvetja félagsmenn sína og allan almenning til að mæta á fundinn á Austurvelli og taka þátt í að hvetja þingheim til góðra verka,“ segir í tilkynningu.
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Fleiri fréttir Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Sjá meira