Fyrirlestrar.is/ "Þessi vefur er fyrir alla sem láta sig samfélagið varða" Hrund Þórsdóttir skrifar 7. september 2013 18:45 Stefán Karl Stefánsson, stofnandi og formaður Regnbogabarna, segir vefinn svar við ákalli samfélagsins.
Vefurinn fyrirlestrar.is byggir á starfi Regnbogabarna frá stofnun samtakanna árið 2002 og þar er að finna fræðslu um jafnólíka málaflokka og jafnrétti kynjanna, uppeldi, ofbeldi á heimilum, streitu og geðrækt svo eitthvað sé nefnt. Stefán Karl Stefánsson, stofnandi og formaður Regnbogabarna segir vefinn svörun við ákalli frá samfélaginu enda hafi fjárframlög til fræðslu- og forvarnamála verið skorin mikið niður undanfarin ár. „Þessi vefur er fyrir alla sem láta sig samfélagið varða,“ segir hann. Þegar er að finna yfir 40 fyrirlestra á vefnum og njóta fyrirlestrar Margrétar Pálu Ólafsdóttur hjá Hjallastefnunni, til dæmis strax mikilla vinsælda. Fyrirlestrarnir eru lifandi og stefnt er að því að þeir verði orðnir 300 talsins árið 2016. Hægt er að horfa á þá hvar sem er og segir Stefán að þeir geti sem dæmi nýst vel í skólastarfi. Þegar er hafinn undirbúningur fyrir sams konar vef í Bandaríkjunum. „Við erum að leita að sjálfboðaliðum á Íslandi, þýðendum, sem eru til í að þýða fyrirlestrana okkar og setja texta á þá á hinum ýmsu tungumálum,“ segir Stefán. Einnig er stefnt að því að fá erlenda fyrirlesara. „Og hafa þetta samvinnu því fólk er fólk, hvar sem við erum í heiminum og við erum öll að glíma við sömu verkefnin,“ segir hann. Stefán segir forvarnir ekki verkefni sem eigi sér upphaf og endi, heldur sé símenntun nauðsynleg. „Þarna er komið forvarna- og fræðsluverkefni sem verður til um aldur og ævi. Þetta er sett upp líka fyrir síma og ipad og öll þessi tæki og tól sem til eru, svo það er tilvalið að horfa á einn fyrirlestur til dæmis þegar maður er að bíða eftir strætó.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira