Innlent

Líklegt að reksturinn leggist af

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra og annar þingmaður norðurkjördæmis, segir líklega ekki vera til peninga í ríkissjóði til að létta undir með rekstri Strætó í sveitafélögum Eyþings.
Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra og annar þingmaður norðurkjördæmis, segir líklega ekki vera til peninga í ríkissjóði til að létta undir með rekstri Strætó í sveitafélögum Eyþings.
Eyþing, sem séð hefur um rekstur strætisvagna á Norðurlandi, gerir kröfu til þess að stjórnvöld létti undir með rekstrinum sem annars fer í þrot í næstu viku. Formaður félagsins segir framlögum stjórnvalda til strætóaksturs á landsbyggðinni mjög misskipt.

Almenningssamgöngur voru færðar til sveitarfélaga með vegaáætlun í fyrra og hafa þau séð um reksturinn síðan í janúar. Geir Kristinn Aðalsteinsson, formaður Eyþings, sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að snemma á árinu hafi komið í ljós að það stefndi í halla.

Fjármunum var misskipt þegar þeim var dreift á milli landshluta vegna verkefnisins. Þannig hafi sveitarfélög í kringum höfuðborgarsvæðið hafi fengið 29 milljóna þróunarstyrk til verkefnisins á meðan sveitarfélög fyrir norðan hafi aðeins fengið styrk upp á þrjár milljónir.

Sveitarfélögin sem tilheyra Eyþingi þurfa að greiða rútuverktakanum sem sér um keyrsluna 4 milljónir króna á miðvikudag í næstu viku, en ekki eru til fjármunir til þess. Fái verktakinn ekki greitt mun hann hætta akstri strax á miðvikudag.

Fundað verður með innanríkisráðherra og þingmönnum etir helgi. Geir vonast til að verkefnið verði endurhugsað og að viðeigandi fjármagn fáist til þess að halda því áfram. Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra og annar þingmaður norðurkjördæmis, er ekki bjartsýnn á að til séu fjármunir í ríkissjóði til þess.

„Það er víða verið að kalla á aukna fjármuni úr ríkissjóði til ýmissra verkefna, og mín skoðun er sú að þau eru ekki til fjármunir til að verða við öllum þeim óskum. Það er ljóst að menn verða að bregðast við með einhverjum öðrum hætti en þeim að úr ríkissjóði komi meira fé. Það á hugsanlega við í þessu tilfelli. Fólk þarf að hafa það mjög ríkt í huga. “

Svo það getur verið að reksturinn leggist af?

„Það kann vel að vera. Ef að sú er niðurstaðan þá verða menn einfaldlega að una því og taka upp þráðinn um áramót þegar nýtt fjárhagsár hefst," segir Kristján.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×