Ráfaði einn í marga klukkutíma Hanna Rún Sveirrisdóttir og Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 8. september 2013 19:10
Maður á níræðisaldri, sem fannst liggjandi á bílastæði við Hrafnistu á þriðja tímanum í fyrrinótt, er látinn. Aðstandendur furða sig á að starfsfólk þjónustuíbúðarinnar, þar sem hann bjó, hafi ekki tekið eftir því að hann hafi horfið um kvöldið. Talið er að maðurinn hafi dottið niður af steinvegg og fallið um einn metra. Við fallið hlaut hann alvarleg meiðsli sem svo leiddu hann til dauða. Maðurinn, sem hefur verið með heilabilun í nokkur ár, bjó í þjónustuíbúð aldaðra við Norðurbrún. Jóhanna Eiríksdóttir, stjúpdóttir mannsins, furðar sig á að starfsfólk hafi ekki tekið eftir því að maðurinn hafi horfið um kvöldið, en á vef Norðurbrúnar kemur fram að öryggiskerfi sé í húsinu og vakt allan sólarhringinn. Húsnæði Norðurbrúnar lokar alltaf klukkan tólf á miðnætti, en samkvæmt upplýsingum aðstandanda fannst maðurinn ekki fyrr en klukkan þrjú í fyrrinótt. Þá var líkamshiti hans kominn niður í 33 gráður. Fyrst þegar fréttastofa hafði samband við starfsfólk Norðurbrúnar vörðust þau allra svara og sögðust ekki kannast við manninn, en hann er skráður með lögheimili þar. Síðar kom í ljós að starfsfólk taldi sig vera bundið þagnarskyldu um málið. Jóhanna og aðrir aðstandendur vilja að að farið verði ofan í saumana á því hvernig þetta gat gerst, og að koma verði í veg fyrir að svona lagað gerist aftur. Illa gekk að hafa samband við starfsfólk Norðurbrúnar við vinnslu fréttarinnar, en nú rétt fyrir fréttir tjáði forstöðukonan sig við fréttastofu. Þar kom fram að síðustu samskipti sem starfsfólk hafi við manninn hafi verið klukkan tíu þegar hann fékk lyfin sín. Þjónustusamingur mannsins við Norðurbrún kveður á um reglulegt innlit. Forstöðukonan gat ekki tjáð sig um hversu tíð þessi innlit eru, en greinilegt er að enginn hafði athugað með hann í yfir fimm klukkutíma. Hún segir að fundað verði um málið eftir helgi.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira