Álagið á kennara eykst Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. mars 2013 12:00 Ólafur Loftsson er formaður Félags grunnskólakennara. Mynd/ Rósa.
Nýjar tölur Hagstofunnar sem sýna að kennurum, leiðbeinendum og öðru starfsfólki grunnskóla fer fækkandi kemur Ólafi Loftssyni, formanni Félags grunnskólakennara ekki á óvart. Á vef Hagstofunnar kemur fram að síðasta haust voru 7.279 starfsmenn í 6.550 stöðugildum í grunnskólum á Íslandi. Þar af voru 4.784 starfsmenn við kennslu í 4.534 stöðugildum. Starfsfólki fækkaði fjórða árið í röð. Starfsmönnum við kennslu, þ.e. skólastjórnendum, deildarstjórum og kennurum fjölgaði um 41, sem er fjölgun um 0,9%, en stöðugildum þeirra fækkaði um 25. Öðrum starfsmönnum grunnskólans en starfsfólki við kennslu fækkaði um 99 og um 107 stöðugildi. Frá haustinu 2008 hefur öðrum starfsmönnum en þeim sem koma beint að kennslu barna fækkað um 288 manns (10,4%) og stöðugildum þeirra fækkað frá sama tíma um 301 (13,0%). „Þetta þýðir bara mikið álag og menn geta ekki sinnt öllu," segir Ólafur í samtali við Vísi. Þetta þýði einfaldlega að menn vinni allt of mikið, oft án þess að fá greitt fyrir það. „Við vitum það að á meðan nemendum er að fækka hverfandi að þá þýðir þetta bara það að það eru miklu færri að sinna þessum störfum," segir hann. Hann bendir líka á að verkefnum sé alltaf að fjölga. Grunnskólanemum með erlent ríkisfang og erlent móðurmál fari fjölgandi og skóli án aðgreiningar sé í fullum gangi. Þegar fólki fækki sé því vinnan meiri fyrir þá sem eftir eru í störfunum, með tilheyrandi álagi.
Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Hringveginum lokað frá Markarfljóti til Öræfa Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Sjá meira