Funduðu vegna hótana ESB um viðskiptaaðgerðir Haraldur Guðmundsson skrifar 22. ágúst 2013 15:11 Á þriðjudag var staðfest að framkvæmdastjórn ESB sé að undirbúa viðskiptaaðgerðir gegn Íslandi vegna makrílveiða.
Íslensk stjórnvöld hafa kallað fulltrúa Evrópusambandsins hér á landi á sinn fund vegna hótana sambandsins um viðskiptaaðgerðir gegn Íslandi vegna makrílveiða. Þetta segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Ástæða fundarins var fréttatilkynning framkvæmdastjórnar ESB á þriðjudag vegna aðgerða gegn Færeyjum vegna síldveiða þar sem staðfest er að framkvæmdastjórnin sé að undirbúa slíkar aðgerðir gegn Íslandi vegna makrílveiða. „Á fundinum gerðu fulltrúar utanríkisráðuneytisins fulltrúum ESB grein fyrir þeirri afstöðu íslenskra stjórnvalda að slíkar aðgerðir myndu einungis spilla fyrir samningsmöguleikum í deilunni. Ísland hafi ítrekað sýnt samningsvilja, nú síðast með boði um strandríkjafund í Reykjavík í byrjun september, sem allir deiluaðilar hafi þekkst. Vaxandi hótanir um viðskiptaaðgerðir spilli verulega fyrir því andrúmslofti sem þær viðræður fari fram í. Jafnframt var vísað til yfirlýsingar ríkisstjórnar fyrir helgi og ítrekað að þó Ísland styddi ekki kröfur Færeyinga í síldarmálinu þá mótmæltu stjórnvöld harðlega aðgerðum ESB þar sem Ísland teldi að aðgerðir af þessu tagi væru ekki til þess fallnar að stuðla að lausn, heldur þvert á móti,“ segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins. Tilkynningin tekur að lokum fram að á fundinum hafi verið áréttað um mikilvægi þess að vandað væri til upplýsingamiðlunar í þessari viðkvæmu deil og að „það hjálpaði alls ekki að spyrða makrílmálið og síldarmálið saman eins og gert hafi verið í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnarinnar.“
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Smyglaði sér ofan í laug og lét furðulega gagnvart gestum Innlent Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Fleiri fréttir Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Sjá meira