Viðskipti innlent

Viðsnúningur á rekstri Advania í Noregi

Lovísa Eiríksdóttir skrifar
Gagnaver Advania. Advania á Íslandi sinnir upplýsingatækni fyrir atvinnulífið og neytendur á sviði hug- og vélbúnaðar. Einnig  rekur félagið hýsingu og gagnaver auk margvíslegrar rekstrarþjónustu.
Gagnaver Advania. Advania á Íslandi sinnir upplýsingatækni fyrir atvinnulífið og neytendur á sviði hug- og vélbúnaðar. Einnig rekur félagið hýsingu og gagnaver auk margvíslegrar rekstrarþjónustu.
Mikill viðsnúningur hefur orðið hjá Advania í Noregi eftir mjög erfiðan rekstur á síðasta ári, er fram kemur í hálfs árs uppgjöri félagsins.

Hagnaður fyrir vexti, skatta og afskriftir nam 469 milljónum króna á fyrri hluta ársins samanborið við 486 milljóna króna tap á rekstir á sama tímabili í fyrra. Umskiptin má meðal annars rekja til 540 milljóna króna sölu á hugbúnaðarréttindum til stórs viðskiptavinar á tímabilinu, umfangsmikilla skipulagsbreytinga um síðustu áramót og hagræðingar í rekstri.



Hagnaður Advania samstæðunnar nam 940 milljónum króna fyrir vexti, skatta og afskriftir á fyrri helmingi ársins samanborið við 48 milljónir króna á sama tímabili í fyrra.

Heildartekjur fyrstu sex mánuðina námu 14.178 milljónum króna samanborið við 12.954 milljónir á fyrri helmingi síðasta árs og jukust því um 9,4%.

Þegar tekið hefur verið tillit til fjármagnsliða og skatta nemur hagnaður af rekstri samstæðunnar á fyrri helmingi ársins 247 milljónum króna samanborið við 580 milljóna króna tap á sama tímabili árið 2012. 

Hjá Advania starfa um 1.100 starfsmenn í 20 starfsstöðvum á Íslandi, í Svíþjóð og í Noregi.

Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, segir afkomu Advania í Noregi hafa haft mun meiri áhrif á niðurstöður samstæðunnar en umfang starfseminnar gefur tilefni til. 



„Rekstri í Noregi hefur verið snúið til betri vegar með markvissum aðgerðum.   Jafnframt hefur hlutfall erlendra tekna af veltu á Íslandi vaxið talsvert á milli ára. Þetta skapar aukna breidd í tekjumynstri Advania á Íslandi. Í því felast tækifæri til vaxtar á þröngum heimamarkaði en rekstrarumhverfi í greininni hefur af ýmsum ástæðum verið erfitt á síðustu árum. Við getum því verið nokkuð sátt við afkomuna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×