Innlent

Segir ólíklegt að umferð leiti annað við þrengingu Hofsvallagötu

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Samgöngustjóri Reykjavíkurborgar segir það vera ólíklegt að umferð leiti annað við þrengingu Hofsvallagötu. Hann ítrekar að þeir sem hafi upphaflega átt hugmyndina að breytingunum hafi verið íbúar við götuna og minnir á að ómögulegt sé að gera öllum geðs.

Mikið hefur verið rætt um Hofsvallagötu síðustu daga og vikur en framkvæmdir við götuna, sem miða að því að auka öryggi vegfarenda og lífga upp á götumyndina, hafa fallið misvel í kramið hjá bæði borgarfulltrúum og íbúum.

Þannig fullyrti Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, í fréttum um helgina að þrenging götunnar með afmörkuðum rýmum væri ekki til þess fallin að auka öryggi, þvert á móti myndi umferðin leita annað og inn í hverfið.

Þessu er Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar, ekki sammála og bendir á að þrenging Hofsvallagötu hafi lengi verið á teikniborðinu ásamt því að vera liður í hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar. Þar að auki þurfi gatan ekki að vera tólf metra breið til að flytja þá umferð sem um hana fer.

„Það sem er ákvarðandi með umferðarflæði er fyrst og fremst stýring ljósanna við Hringbraut. þrenging götunnar í tvær akreinar, ég tel að það muni ekki hafa þau áhrif að umferðflæði breytist en við höfum talið umferð og munum fylgjast með henni áfram."

Ljóst er að íbúar og kaupmenn við Hofsvallagötu taka beytingunum misvel en Ólafur ítrekar að umræðan sé ekki ný af nálinni.

„Það er nú svoleiðis að þeir sem áttu hugmyndina að þessu öllu saman búa hér við götuna. Þetta er ekki ný umræða, hún hefur verið í gangi í þrjú ár og það er alltaf þannig með breytingar að það eru ekki allir ánægðir en ég vona að fleiri verði ánægðir en óánægðir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×